Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

fimmtudagur, júní 22, 2006

Þunnur

við strákarnir (ég og dönsku skólafélagarnir) fórum og fengum okkur að éta í gær og söfnuðumst svo saman heima hjá einum þar sem búið var að tæma ísskápinn af mat og fylla af bjór . .
Ég vaknaði semsagt hress og kátur snemma í morgun ;)

Við Silja kíktum svo til Aabenraa í dag á fund í skólanum sem hún er að fara í í haust.
það tekur 30min að keyra þangað og hún kemur til með að taka bus á hverjum degi fram og til baka.
Það tók okkur smá tíma að finna skólann en við fundum hann á endanum eftir að hafa ekið um skemmtilegar götur eins og "Brundlund" t.d.
Námið er "Tandklinikassistant" . . Silja ætlar semsagt að vera "sæta aðstoðarkona tannlæknisins" :)
Þetta eru 20 vikur í skóla og svo bara samningur á launum, hvort sem hann er tekinn í skólanum eða úti á vinnumarkaði.

Dóri sendi mér svo þennan link í dag, einhver snillingurinn búinn að mixa Gunnar í Krossinum inn í techno-lag . . varúð, sérstaklega vont ef maður er þunnur !
http://www.this.is/alliat/mp3/gunnarskaffi.mp3

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hihihihi þetta er bara vont ég vona svo innilega að þetta verði ekki af einhverri sumarþrumu og fái spilun eins og svo margt annað rusl.

Brynsyz.

P.S. Þurfti ekki að vera þunn til að finnast þetta.

14:14  
Anonymous Nafnlaus said...

Hugmyndin er góð og alltaf gaman að heyra Gunnar predika en úrvinnslan er, skulum við segja "hroðvirknisleg".

En maður á samt ekki að bjóða syndinni í kaffi. Miklu betra að bjóða henni í grand dinner til að hafa hana góða... :)

21:55  
Anonymous Nafnlaus said...

Sammála öllum. Hugmyndin góð en fígúran kynlegur kvistur.
Vond úrvinnsla.

Silja tannaðstoðarkona.
Er þá uppáhaldsíþróttin hennar tennis?

13:32  
Blogger Gauti said...

úúúúffffff . . ég fékk íllt í tennurnar af þessum . . hehehe

20:46  
Anonymous Nafnlaus said...

Gauti, hefurðu einhverntíma verið kallaður Eiríksgauti? Datt þetta bara allt í einu í hug... :)

23:55  
Blogger Gauti said...

uuu . . neeei . . er hinvegar kallaður "Gátí" hér í Danmörku af því danirnir kunna ekki að bera nafnið mitt fram.

14:28  
Blogger Gauti said...

"s"
Þetta er s-ið sem á að vera í "hinsvegar" hér fyrir ofan

19:37  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter