blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

föstudagur, nóvember 07, 2008

Leikur aldarinnar !

. . þið getið hent Nintendo wii og PS3 . . hér er málið . . leikur aldarinnar . . hallið ykkur aftur og hækkið í tölvunni/græjunum . . press play!

sunnudagur, nóvember 02, 2008

Sunnudagsgetraun

Hér koma þrjár setningar úr íslensku sjónvarpsefni (Myndum eða þáttum). Hvaðan eru þær ?
Þeir sem vilja besserwissast geta líka komið með hver sagði hvað við hvern.

  1. "Nú er bara að duga eða drehh . . . ja nú er bara að standa sig! ".
  2. "Ekki kom ég svona og ekki fer ég svona aftur . . uu nei þetta er leiguskýla, þú verður að skila henni".
  3. " . . og svo er bara lagt á mann . . það sem er lagt á mann".

Have fun ;)

föstudagur, október 31, 2008

Erann ekki sætur :)



Mig langar doltið að eiga einn svona . . . Þetta er svokallaður Albino Ball Python . . sama týpa og ég er með um hálsinn á facebook myndinni . . . bestu gæludýr í heimi ! . . Borðar sjaldan og þegar þú þarft að skreppa í ferðalag þá er bara að setja hann í ísskápinn á meðan . . kalt blóð = leggst bara í dvala. Svo ef hann étur eitthvað sem hann má ekki éta, gæludýr eða krakka nágrannans t.d., þá sést það strax ;)

þriðjudagur, október 28, 2008

Taka tvö . .

Andri gerði lítið úr síðustu getraun . . fólk var brennt á báli fyrir minna hérna í denn !
Allavega þá ætla ég að prófa aftur og hafa þetta tónlistarlegs eðlis sem fyrr.
Ef ég hef reynt að lifa eftir einhverju öðru en bara skynsemi og að hafa það gott og gaman þá er það orðatiltæki sem ég heyrði einusinni og fannst alveg málið. Man ekki hvort ég heyrði það fyrst þar en það kemur fyrir í lagi. Lagið er reyndar alveg þétt leiðinlegt með annars príðilegri hljómsveit af jafn góðum diski.
Diskurinn er talsvert öðruvísi en þeir sem bandið gerði á undan og eftir.

Orðatiltækið er svona: "it's better to regret something you did than something you didn't do".

Hvað er lagið og bandið ?

. . endilega verið á undan Andra !

mánudagur, október 27, 2008

Getraun !

Ég var með nýtt lag á heilanum um daginn . . var að spá í textanum og í einhverjum súrindum íslenskaði eina línu í textanum . .
Þýðing mín er svona: "Ó hversu ílla út þetta lítur . . eins og að tína rusl í kjól og hvítu".
Þýðingin er svo gott sem beinþýðing.
Þetta er afskaplega rólegt og fallegt lag . . ekki það þekktasta af plötunni sem er ný með jafn nýjum listamanni.
Hver er listamaðurinn og hvaða lag er þetta ?

Ég blogga ekki aftur fyrr en einhver kemur með svarið.

fimmtudagur, október 23, 2008

Öryggið í fyrirrúmi !


Ég skrapp til íslands í síðustu viku eins og sumir vita. Ég náði ekki að hitta alla sem mig langaði að hitta eins og alltaf en helvíti fín ferð samt. Þar sem ég hef alltaf nóg að gera í skólanum tók ég skólatöskuna mína með til að vinna í nokkrum verkefnum í fríinu. Ég var með "lapptoppinn" minn í töskunni og tók hana því í handfarangur. Ég var líka með pennaveskið í töskunni og í því er ég með þennan hníf sem sést hér fyrir ofan á myndinni. Bæði til og frá Íslandi (fyrst á Kastrup og svo í Leifstöð) var tölvunni rennt sér í gegn og taskan gegnumlýst og skoðuð . . án athugasemda. Ef ég væri liðsmaður Al-Qaeda hefði ég allt eins getað smellt mér fram í cockpit og "slæsað" flugmennina frá eyra til eyra. Gaman að vita af því.
Annars eru sprengjur og flugrán orðin hallærisleg hryðjuverk í dag . . nýjasta týska er að stofna banka og fara svo á hausinn . . það verða Arababankar útum allt eftir smá . . mark my words !

þriðjudagur, október 21, 2008

Irdna - кекс с цукатами и орехами!

Он - позади большинства комментариев от предыдущего поста.Симулируя быть исландским президентом и его женой, молодой девочкой и премьер-министром России .. он имеет к большому количеству времени на его руках!

Ástæðan komin



miðvikudagur, október 15, 2008

Piff !

Það les enginn þetta blogg lengur . . réttupphend sem les þetta bull !

laugardagur, október 11, 2008

Ísl. númer

Er með númerið 8979576 á frá í dag, til og með 19. okt . . .
Verið í bandi

laugardagur, október 04, 2008

The Ig® Nobel Prizes

Já það víst til eitthvað sem heitir IG Nobels verðlaunin og þau eru veitt fyrir gagnslausar en athyglisverðar rannsóknir.
Það sem mér fannst athyglisverðast af verðlaunahöfum þetta árið var:
  • Stærð-/eðlis-fræðingur sem sannaði stærðfræðilega að hrúga af snúrum, eða hári eða öðru þessháttar, endar alltef með að fara í flækju.
  • Könnun sem sannaði að kók, og þá aðallega diet kók, hefur slæm áhrif á sæði.
  • Könnun sem sannaði að dýrt placebo virkar betur en ódýrt placebo.

Frekari upplýsingar má finna hér . . annars sá ég þetta í frétt á mbl

Hit Counter
Hit Counter