blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, mars 31, 2008

Hressist . . en ávallt hress

Ég var alveg á nippinu að sækja um örorku vegna langvarandi veikinda . . "ég er sjúkklingur! . . pulsu með engu . . og RJÓMA!".
Nei ég er að verða hress . . loksins !

Hei það bankaði uppá hjá mér gömul Vottajehóvakeddling . .um daginn.
Hún vildi endilega gefa mér bækling og sagði það mikið að minnka að fólk væri að lesa Biblíuna sér til stuðnings.
En hún hélt því fram að það væri allt satt og rétt og guðs orð það sem stendur í Biblíunni og máli sínu til stuðnings las hún uppúr Biblíunni !
"það er mikið að marka þessa bók . . sko það stendur hérna í bókinni !"
Ég brosti bara og þáði bæklinginn og bað hana að eiga góðan dag :)

Think God I'm an Atheist ;)

fimmtudagur, mars 27, 2008

Páskafret

veikur alla páskana uns dagur rennur á ný . . vooooó
Veikur alla páskana útum borg og bý!

helvítissss pessst !

þetta er hinsvegar hugrakkur maður með eitthvað af viti að segja !
Kemur frá þessari frétt.

Ég er ekki hress en fer batnandi . . vonandi . . segið þið eitthvað ?

miðvikudagur, mars 05, 2008

Aðeins of . .

Ég hélt að enginn nennti að lesa þetta lengur en svo virðist ekki vera . . . þá er bara að halda áfram að segja frá sér :)

Ég er kannski aðeins of brjálaður í heilsuræktinni . . allavega þá sagði líkaminn stopp í gær.
Ég er búinn að vera að fara 4 sinnum í viku (mán, þri, fim og lau) í ræktina og svo er karfa á miðvikudögum . . . ætti að vera nóg til að koma mér í þönder form.
En í gær semsagt varð ég bara drulluslappur sem endaði á heitu baði, verkjatöflum og "í háttinn klukkan átta" eins og í laginu.
Ég tók aðeins of harkalega á því á mánudaginn og fann fyrir því í gær en fór samt aftur að lyfta.
Svona er að vera klikk . . . búinn að gera plan og það stoppar mig ekkert í að fylgja því.
Ég er allavega alveg hress í dag og ætla í körfu á eftir.

Núna er ég líka búinn að gera vikuplan fyrir bachelor projektið mitt og vonandi verð ég eins harður að fylgja því.

Svo þarf ég að fara að spila eitthvað líka, alveg klæjar í puttana . . alltaf sama ruglið í þessum trommurum.
Það er líka staðreind að ef maður leggur í fatlaðra stæði og skilur eftir trommukjuða ofan á mælaborðinu þá fær maður ekki sekt ;)

sunnudagur, mars 02, 2008

Helmassaður og tannaður í drasl fyrir páska !

Já ég er víst löngu kominn aftur í milda veðrið í DK . . mjög fínt en dýrt og stutt á ísl . . ekkert sem maður vissi ekki fyrir.
Er að vinna í að setja í skólagírinn en heilsugírinn er á fullri keyrslu.
Byrjaður aftur að lyfta og stefni á að vera nálægt 90kg í sumar . . var bara 78kg þegar ég byrjaði sem er full lítið samanborið við hæðina sem er 191cm. . . eins og er er ég að detta í 80kg svo að það byrar vel . . en kílóin eftir 85kg verða erfið.
Næsta haust verð ég svo kannski að nálgast það sem ég var vorið áður en ég flutti hingað út . . sem er 97kg . . það að sitja á skólabekk er semsagt búið að taka af mér næstum 20kg.
Ég bara hverf ef ég geri ekki neitt.
Ég er nokkuð viss um að ég hafi aldrei farið yfir 10% fitu síðan ég var 2ja. Samt borða ég beikon og rjóma og feitt kjöt og smjör og feitann ost og mikið af ís og súkkulaði og bara allt og mikið af því . . eini sénsinn fyrir mig að halda mér UPPI í kjörþyngd er að lyfta og éta prótein og mikið af öllu öðru . . ætti kannski að láta rannsaka mig.

Ég er annars líka búinn að vera að lesa doltið.
Ég fékk í jólagjöf Harðskafa eftir Arnald Indriðason og er búinn með hana og Mýrina og svo Predikarann eftir Camillu Lackberg . . allt fínar bækur.
Við Silja erum eins og eldgamalt par, komin snemma í rúmið til að lesa öll kvöld . . ja eða mörg kvöld.
Ég varð mér svo úti um myndirnar: Predikarann (á sænsku með dönskum texta) og Mýrina.
Mýrin er fín en aðeins frábrugðin bókinni. Ingvar E. Sigurðs er alveg sérstaklega fínn að vanda . . Hugsanlega er samt betra að sjá bara myndina eða lesa bara bókina . . eða útiloka að það sé tenging þarna á milli og þá er bæði fínt.
Predikarinn var sjónvarpsmynd í tveimur þáttum og bara fúnkeraði ekki nógu vel . . góðir punktar en lykilatriðum sleppt . . mæli með bókinni . . og bara bókinni.

skilda að kommenta ef maður les ! . . nóg að segja "hæ . . las"
blæ í bili

Hit Counter
Hit Counter