blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, maí 21, 2007

Brjóttur fótur

Hún Silja mín lenti í óhappi á Laugardagskvöldið.
Það var á "byfest" hér í bæ . . við vorum að labba inn á "fest"-svæðið og á sömu stundu var bíll að aka út frá bílastæðunum . . Silja var að segja eitthvað við mig og labbaði afturábak og á meðan laumaðist bíllinn fyrir aftan hana. Svo þegar Silja snéri sér við steig hún með vinstri fæti fyrir afturdekkið á bílnum og hann ók í rólegheitum yfir löppina á henni þrátt fyrir að hún lamdi í bílinn. Ég hljóp að Silju um leið og á meðan ók bíllinn í burtu.
Ég hringdi í 112 og tveir lögreglubílar og einn sjúkrabíll mættu á svæðið og eftir stutta skýrslutöku frá lögreglu var rokið á sjúkrahús.
Silja var nú hrædd um að það væri verið að gera of mikið mál úr þessu en eftir Röntgen kom í ljós að svo var ekki.
Læknirinn sagði "NOH!" þegar hann skoðaði myndina . . Það var stórt stykki brotið neðst úr aðal beininu niður að ökla (sköflungsbein eða hvaððaheitir).
Þetta þýddi innlögn og skurðaðgerð þar sem þurfti tvær skrúfur til að festa lausa stykkið.
Ég sótti Silju á sjúkrahúsið í dag . . næstu 6 vikurnar verður hún á hækjum.
Það böggar mig að hafa ekki náð númerinu á fjárans bílnum en eins og ég sagði var það Silja sem ég hugsaði um fyrst.
Þegar ég hringdi í tengdó til að láta þau vita af óhappinu kom í ljós að þau voru á leið á Spítala að sækja yngri systur Silju . . hún hafði brotið á sér hendina og það þurfti að negla það saman í aðgerð líka . . tvær brotnar systur á sama deginum . . what are the odds ?
Það á eftir að "pípa" á þær systurnar á öllum flugvöllum semsagt . . allavega verða skrúfurnar ekki teknar úr fætinum á Silju nema þær valdi óþægindum . . verða bara hafðar í.

Ég er að fara í próf á morgun sem var 50% fall í í fyrra og vegna alls þessa hef ég ekki getað lært eins mikið og ég vildi . . kemur allt í ljós á morgun . . "brake a leg" eins og "þeir" segja ;)

miðvikudagur, maí 16, 2007

Ég er ömurlegur !

Ég er búinn að vera latur alla önnina í stærðfræði og satt að segja gerði ég bókstaflega ekkert alla önnina . . í stærðfræði semsagt.
Á laugardaginn reiknaði ég fyrsta dæmið þessa önnina og þá voru 3 dagar í próf.
Ég reiknaði allt "pensumið" um helgina og fór svo yfir gömul próf á mánudaginn.
Í gær var prófið sjálft og ég RÚLLAÐI ÞVÍ UPP !!!

Ég fæ næstum samviskubit . . grey þeir sem hömuðust alla önnina og svo tek ég 3 daga í þetta og segi það gott . . og það var reyndar bara vel gott ;)
En til hvers að eyða heilli önn í það sem hægt er að gera á 3 dögum . . það er það sem danirnir kalla "spild arbejde" ! . . . múhahaha

fimmtudagur, maí 10, 2007

Gaman að því . .

Varð að bæta við öðru bloggi . . þetta er niðurstöður úr stuttri könnun sem ég tók á netinu :

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 18.75%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 50%
Stuðningur við Samfylkinguna: 25%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 36%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 20%

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Framsóknarflokksins!

þannig er nú það . . . takið testið

Gæsahúð ofl

. . ég gat ekki að því gert að ég fékk þvílíka gæsahúð þegar ég horfði á þetta og framhald hérna.
Gott að hann er orðinn hress aftur svo að þessi frábæri þáttur geti haldið áfram.

Ég er kominn með magnarann, fékk hann í gær og er mjög sáttur . . hann lítur út og sándar eins og nýr þó hann sé 2005 árg. . . aldrei verið giggað með þennan.
Það verður því líklega hans fyrsta og mitt fyrsta í 3ár (fyrir utan þorrablótið) á morgun.
. . og svo er fyrsta próf á þriðjudaginn . . nóg að gera ;)
Við erum semsagt að spila ásamt nokkrum öðrum böndum í Sönderborghus á morgun . . allir að mæta :D

Ég er að hugsa um að enda þetta blogg á þessari snilld og snúa mér að sjónvarpinu, þar sem Jaana "eitthvaðfinnskt" og Mikko Leppilampi voru að setja undankeppni Eurovision . . þetta byrjar vel með hreint alveg ömurlegu lagi frá Búlgaríu !

fimmtudagur, maí 03, 2007

Vííí

Ég er í skýunum . . ég er eins og lítið barn á jólum.
Ég pantaði stainless steel "bönd" á ebay fyrir nokkru af því fenderinn minn var farið að vanta bandaskipti.
"Bönd" eru járnin sem liggja upp eftir fingraborðinu á gítarhálsinum (22 eða 24 stk á rafmagnsgítar oftast ) . . . anyway . . ég fékk þessi bönd en hafði svo enga trú á að ég gæti skipt um þetta sjálfur . . en svo þegar foreldrarnir kíktu í heimsókn núna í Febrúar þá nefndi ég þetta við pabba og hann bauðst til að gera þetta fyrir mig . . ég hikaði ekki við að þiggja það boð.
Ég er semsagt kominn með hálsinn til baka núna , búinn að skrúfa hann í og strengja gítarinn og hann er talsvert betri en nýr . . . þvílík snilld !
Ég skil ekki af hverju gítarar koma ekki með stainless steel böndum . . þau eyðast ekki upp og "sánda" og "feel-a" muuuun betur . . . en jú þetta er harðara efni og þ.a.l. er meira vesen að fá böndin til að fitta rétt . . . og þ.a.l. meiri kostnaður fyrir "faktoríurnar".
Ef einhvern vantar ný bönd í gítarinn sinn þá er pabbi alveg klár í fleiri.

Hér er svo linkur fyrir þá sem vita ekkert hvað ég er að tala um.
Þessi síða fer í gegnum það helsta (frá 1 uppí 6, valið neðst á síðunni).

Hit Counter
Hit Counter