
Já ég fór í ferð til Lux um daginn að heimsækja Dóra . . alveg hreint fínasta ferð og athyglisverð að mörgu leiti.
Ég tók lest fram og til baka, næturlest á staðinn og daglest til baka.
Það var t.d. athyglisvert en ég er ekki viss um að ég nenni því aftur.
Ferðin á staðinn tók 15 tíma. Þegar ég var búinn að vera 3 tíma á ferðalagi og búinn að skipta tvisvar var ég samt enn í danmörku . . og þá tók við 8 tíma svefnlest.
Ég svaf nú ekki mikið samt . . það voru 6 manns í klefa í stuttum 3ja manna kojum . . en það hefði sosum verið allt í lagi ef þær hefðu ekki verið það harðar að maður þurfti að vakna til að snúa sér og fá blóð í hina hliðina á líkamanum.
Eftir þessa 8 tíma var ég svo staddur klukkan rúmlega 06:00 í Dusseldorf þar sem ég þurfti að borga fyrir að fara á WC og enginn skildi ensku . . en það reddaðist . . og restin af ferðinni var aðallega gegnum vínhéröðin í Þýsk . . vínviður lengst upp í fjall . . mjög flott svæði !
Klukkan 11:49 var ég svo á lestarstöðinni í Luxemburg Það sem Dóri náði í mig og skutlaði mér heim til sín, þar sem ég lagði mig til 16:00 þar til hann var búinn að vinna.
Helginni var eitt í þvæling um Lux, borðað gott, drukkið gott og haft það gott :)
Farið í bílumboð, hljóðfæraverslun, Hifigræjubúð, snooker/pool-búllu . . ofl ofl.
Það er greinilegt að flestir hafa það sæmilegt þarna, ef marka má bílaeign t.d.
Bentley og Ferrari umboð ofl . .
Borgin er líka mjög falleg, byggð í kringum gljúfur með mikið af gömlum flottum byggingum í bland við nýjar.
Ferðin heim var svo frekar lítið viðburðarík : . . vínhéröðin aftur . . tré, tré, tré . . lestarstöð . . tré, tré, tré . . lestarstöð . . borg . . tré, tré, tré . . Danmörk . . = 12 tímar.
Annað í fréttum er að Drollan og kallinn hennar + krónprins og kella komu í heimsókn til Sönderborgar á þriðjudaginn til að vígja nýja skólann.
Endalaust af löggum með hunda og jakkafatadúddum með headset . . lagður rauður dregill, þrifnar rúður (allar 100þúsund eða hvaððær eru), allt blómaskreitt og líkan af byggingunni byggt úr Lego . . ogégveitekkihvað . . svo þurfti maður að framvísa nemendaskírteini ti lað komast inn í skólann. Auk þess var lyftunum kippt í lag þó svo að drottningin ætti ekki að nota þær . . hefði mátt vera búið að því fyrr fyrir okkur nemendurna, en við skiptum náttulega engu máli . . við þurfum bara að nota húsið á hverjum degi.
Ég hló nú bara að vitleysunni og fór svo heim áður en reykingasjúklingurinn kom.