blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

miðvikudagur, júní 28, 2006

Farinn . .

. . til Íslands . . lendi á miðnætti að staðartíma
Verð með þetta nr : 845-5068

Kem aftir til DK 17. Júlí

Lauma kannski inn bloggi á Ísl. ef ég er í stuði . . annars bara seinna

blæ blæ

mánudagur, júní 26, 2006

Heitt og lítið títt

Í dag var ógeðslega heitt og samt er búið að vera skýjað og jafnvel rigning í allan dag . . skrítið veður. Annars er ekkert að frétta . . ekki fyrst ég er að blogga um VEÐRIÐ !

. . Jú við grilluðum í gær og fengum gesti og borðuðum alltof mikið . . sem er gott!
. . og svo Irish á eftir . . mmmmmmm

Ég er voða mikið að spá í að fara á Ham á Nasa á fimmtudaginn (við komum sko til landsins á miðnætti miðvikudag) . . by the way þá vorum við Dóri að spá í coverlaginu "Airport" sem Ham tóku snilldarlega ( þ.e.a.s. ef cover skildi kalla því það eina sem heldur sér er hljómborðslínan og viðlagið).
það eina í textanum sem heldur sér er þegar Óttar Proppé öskrar "AIRPORT !", restin er svo bull og þvæla a la Sigurjón Kjartans og er eitthvað á þessa leið:
"now I'm going very far away
and I'm going to East L.A.,
and im going to Smoky bay,
ó jess ó jei
. . we're gonna flyyyy away"

skemmtilegt :)

Hér er original textinn með "The Motors" :
http://www.lyrics4all.net/t/the-motors/u/airport.php

. . . er annars einhver sem veit hvernig ég fæ linkana til hliðar við bloggin en ekki fyrir ofan eins og þeir eru nú ?

fimmtudagur, júní 22, 2006

Þunnur

við strákarnir (ég og dönsku skólafélagarnir) fórum og fengum okkur að éta í gær og söfnuðumst svo saman heima hjá einum þar sem búið var að tæma ísskápinn af mat og fylla af bjór . .
Ég vaknaði semsagt hress og kátur snemma í morgun ;)

Við Silja kíktum svo til Aabenraa í dag á fund í skólanum sem hún er að fara í í haust.
það tekur 30min að keyra þangað og hún kemur til með að taka bus á hverjum degi fram og til baka.
Það tók okkur smá tíma að finna skólann en við fundum hann á endanum eftir að hafa ekið um skemmtilegar götur eins og "Brundlund" t.d.
Námið er "Tandklinikassistant" . . Silja ætlar semsagt að vera "sæta aðstoðarkona tannlæknisins" :)
Þetta eru 20 vikur í skóla og svo bara samningur á launum, hvort sem hann er tekinn í skólanum eða úti á vinnumarkaði.

Dóri sendi mér svo þennan link í dag, einhver snillingurinn búinn að mixa Gunnar í Krossinum inn í techno-lag . . varúð, sérstaklega vont ef maður er þunnur !
http://www.this.is/alliat/mp3/gunnarskaffi.mp3

miðvikudagur, júní 21, 2006

Sumarfríííí !

Ég varði semesterprojektskýrsluna í morgun og er þ.a.l. búinn með allt þessa önnina . . við fengum 8 . . ég hefði viljað 9 en maður ræður víst ekki alltaf . . eða aldrei . . en ég allavega get ennþá sagt að engin einkun sé undir 8 og er bara sáttur við það.

Eftir viku er það svo "Ísland . . gamla ísland . . ástkær fósturjörð . . "
Talandi um það . . það er ekki eins hlítt í dag eins og undanfarið, skýjað og smá gola og ég sagði við strákana niðrí skóla að það væri svona þægilegt "íslenskt" sumarveður í dag.
Þá minntust þeir á að það væri einmitt kallað það stundum ef það kemur vont veður (þó aðallega í Þýskalandi) . . .
í Norðvestanátt og kulda er s.s. talað um "íslenskt veður" . . mér fannst það doltið spes :)

Annars lítið í fréttum og ég bara hress . . hvað segið þið ?

þriðjudagur, júní 20, 2006

Íþróttaálfameiðsl

Íþróttaálfurinn er frá vinnu vegna íþróttameiðsla:

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1208234

. . ég var nú búinn að frétta af þessu alla leið hingað til DK en þá átti hann að hafa slitið bicep (framhandleggsvöðva), ekki meitt sig á öxl.
Hálf glatað að æðstistrumpur geti ekki átt nokkra veikindadaga án þess að allt liggi niðri og 200 manns án atvinnu.

Annars er alþjóðlegi flóttamannadagurinn í dag svo það er við hæfi að óska mér til hamingju með daginn . . og fyrir þá sem hafa hugsað sé að flýja land, þá er þetta dagurinn !

sunnudagur, júní 18, 2006

fluttur . . hingað

Eftir mikið kvart um að ekki sé hægt að kommenta á gamla blogginu mínu þá ákvað ég að færa mig hingað . . .

prófum nýja kommentakerfið með skoðun ykkar á þessu :

http://www.spin.com/features/everybodystalkingabout/2006/06/060601_rhcp/

Hit Counter
Hit Counter