blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, október 30, 2006

Extra! Extra! .. Read all about it !

Ég keypti margumtalað "Extrablað" í gær þar sem í er greinin um íslenskt efnahagslíf og hvernig "við" íslendingar erum allir mafíósar sem stundum peningaþvott og séum bara útibú frá Rúsnessku mafíunni . . ekkert annað en fordómar og alhæfingar !
Bara öfund segi ég . . Danir sofnuðu á verðinum og nokkrir sniðugir íslenskir gripu tækifærið.

Þegar ekki tekst að skemma allt með því að halda því fram að við stöndum á brauðfótum með þetta alltsaman þá á bara að moka skít !
Það tókst nú samt að skemma smá því krónan veiktist og það bitnar skemmtilega á íslenskum námsmönnum í danmörku (eins og mér) sem fá lánið sitt frá íslandi.

það eru allavega einhverjir að láta í sér heyra með þetta eins og þessi ágæti íslendingur:
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1231601

það sem pirraði mig líka í þessu sama blaði var grein um einhverja danska strípibeyglu sem var að gefa út bók (danska útgáfan af Jordan greinilega)
. . Allavega talar hún um í þessari "ævisögu" sinni (konan er rétt skriðin yfir þrítugt) að fyrrverandi kærastinn hennar hafi verið að lemja hana eitthvað og hvaðan haldiði að hann hafi verið ?
Júbb hann er íslendingur og heitir Kyle ! . . þetta er einhver blökkumaður og svipað mikið íslenskur og Kio Briggs !
Þessi Kyle fékk allavega dóm og var vísað úr landi "heim" til íslands !

"Við" íslendingar erum semsagt að berja konurnar okkar þegar við erum ekki að þvo peninga og taka yfir heiminn.

föstudagur, október 20, 2006

Hvalveiðar af/á ?

Mér finnst hvalkjöt gott !
Maðurinn er kjötæta og það er ekkert að því að við veiðum okkur til matar ef það er gert skynsamlega . . og þessi 40 stk sem verið er að tala um núna og plönin um max 200 á ári (hrefnur og langreyðar samanlagt) er bara dropi "úr" hafinu . . ekki upp í kött á nesi . .

. . en . .

þetta : http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1229836 . . er ekki gott !

Ég er sammála þessu . . frekar að sleppa þessum örfáu hvalshræjum og halda áfram að rukka liðið okurfé fyrir að skoða greyjin !
það kom frétt um daginn hér í DK þar sem talað var um að hvalirnir væru ekki lengur óhultir og blabla . . en aldrei talað um tölur !
það er jafn vont fyrir ísland að veiða 10 hvali og 10 milljón hvali ! . . það er hvorteðer gert ráð fyrir að þetta séu heilu hvalatorfurnar sem við séum að moka inn.
. . mér er drullusama þó að "Green Beans" fari í fílu . . það er skárra að fara í taugarnar á þeim en Múslimunum eins og Danirnir gera.
En það er fullt til af fólki sem finnst stórmunur á að éta "belju" úr sjó og belju af landi og það fólk (sumt) ferðast til íslands.
Þá finnst mér gáfulegra að halda bara áfram að borða landbeljurnar og okra svo á ferðamönnum eins við fáum borgað fyrir það . . uuu . . já !

mánudagur, október 16, 2006

First you got it . .

. . then you loose it !
Magnað hvað sumir sema höfðu "það" kannski aldrei geta náð nýjum lægðum.
Endilega kíkið inn á bloggið hennar Silju (efsti linkurinn hér til vinstri) og skoðið það nýjasta frá Hr. Hnetukistu (nutcase).

Gæinn var að senda frá sér lagið "jump in my car" og í video-inu vitnar hann í þá tvo hluti sem hann er "frægur" fyrir . . . strandarsprikl og talandi bíl . . . guess who !!?

Ég mæli með því að Googl-a manninn, leita að video-um og skoða alla geðveikina !

Annars er allt hressandi gott að frétta af mér . . ég vann Go-kart mót á vegum skólans um daginn með tilheyrandi kampavínssprauti óg skemmtilegheitum . . og svo var ég fimmti í pokermóti uppí skóla . . gaman að segja frá því.

Annars er mest gaman að segja frá því að ég fékk SMS frá Jóa áðan um að þau séu búin að eignast litla stelpu . . Ég óska þeim innilega til hamingju með það :)
Hann hringdi í mig kl. 8 í morgun og bað mig að redda smá fyrir sig af því að hann og Magga væru að fara upp á Sjúkrahús . . og svo var sú litla komin í heimin kl. 11 . . ekki lengi að þessu !

þriðjudagur, október 03, 2006

Hæbb

meðan þú situr og lest þetta liftu þá hægra fæti upp af gólfinu og sveiflaðu honum í hringi með úri (clockwise semsagt) . .
meðan þú gerir þetta teiknaðu þá "6" út í loftið með hægri hendi . .
um leið og þú gerir það breytir fóturinn á þér um stefnu og fer að snúast á móti úri og það er ekkert sem þú getur gert í því :)

þetta hlítur að vera "feikað" er það ekki ? :
http://video.google.it/videoplay?docid=-4712151344200568094

og þetta er kjánalegt :
http://map.pequenopolis.com/

. . og kommentiði nú !

Hit Counter
Hit Counter