blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

þriðjudagur, apríl 15, 2008

Besta lykt í heimi !

Það var verið að slá grasið fyrir utan hjá okkur í fyrsta skipti á þessu ári.
Það er komið sumar í Sønderborg !
Nýslegið gras í bland við þornandi kúamykju frá sveitabæjum í kring . . ælovvitt !

mánudagur, apríl 07, 2008

One sick mind


Út er komin platan "One Mind" með hjartaknúsaranum og stuðtröllinu Charles Manson.
Plötuna er hægt að ná í hér. . .
Án efa partíplata ársins !

föstudagur, apríl 04, 2008

Tvennt

Nr.1:
Sko . . hversu mikið utanviðsig þarf maður að vera til að vera heilan dag með þrjár linsur í augunum?
Ég semsagt sofnaði um daginn með linsurnar í augunum, vaknaði kl:5 um morguninn og tók þær báðar úr (hélt ég) og hélt svo áfram að sofa. Þegar ég vaknaði kl.7:30 setti ég nýjar linsur í.
Um kvöldið sama dag var linsan í vinstra auga orðin þur og ég ákvað að taka þær úr og nota gleraugun í staðin. Þá komu tvær linsur úr vinstra auga !
Ég hafði semsagt hálfsofandi bara tekið linsuna úr hægra auga og svo sett nýja yfir þá gömlu í vinstra . . og tók ekki eftir neinu í heilan dag !

Nr.2:
Ég ákvað um daginn að stríða 3ja ára dóttur minni með því að "taka af henni nefið" . . það kannast líklega flestir við þetta trikk. Ég man óljóst eftir þegar þetta var gert við mig í fyrsta skipti og ég var ekki hress og heimtaði nefið mitt til baka.
Hún Kristjana Íva bara lét eins og ekkert væri og sagði "þá fæ ég mér bara nýtt nef" og svo greip hún "nýtt nef" úr tómu lofti og setti á sig . . svo vildi hún ekkert gamla nefið þegar ég reyndi að gefa henni það til baka. . . . Ekki hægt að plata þetta barn !
Seinna um daginn var hún að leika sér að taka sjálf af sér nefið, sýna okkur, og setja það á sig aftur.

Hit Counter
Hit Counter