blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

laugardagur, júlí 29, 2006

Nei Nei Nei !

Hvað er þetta með Íslendinga og að þýða allt ?
Sumt bara þýðir maður ekki eins og nöfn á erlendum atburðum t.d.
Gott dæmi er "Evróvisjón" sem er asnaleg hálfþýðing.
En ég rakst á annað asnalegra núna áðan . . . ég var að lesa frétt á MBL um áfríun CBS sjónvarpstöðvarinnar á Janet-bróstamálinu fræga úr Superbowl og sektargreyðslu þessvegna.
Þetta mál var allt hið kjánalegasta en fór engu að síður mikið fyrir "bróstið" á sumum bandaríkjamönnum.
En allavega . . þessi setning kemur fyrir í fréttinni : "Brjóstið birtist áhorfendum Ofurskálarinnar".
. . . bíddu haaa . . OFURSKÁLARINNAR !!!?? . . . jújú , Superbowl beinþýtt !!!!

Við lesum eflaust bráðum um vaxandi "umferðarsultur" í "Nýju Jórvík" og þar sem "stöðvarvagnar" koma eflaust mikið við sögu.
Ég er ekki með fleiri kjánalegar beinþýðingar í "bakhöfðinu" en ef ykkur dettur eitthvað í hug þá segið frá.
Hér er svo linkur á fréttina : http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1215087

miðvikudagur, júlí 26, 2006

Heeeeiiiitttt !!!

það er hitamolla hérna !
Ég var á ströndinni í dag og hausinn á mér er með hugsunardelay . .
þegar allt er heitt og sveitt og hausinn er sljór þá er vont að blogga.
Mér líður eins og Ace Ventura í Nashyrningnum í "When Nature Calls".

segið-i mér eitthvað skemmmmtilegt !

föstudagur, júlí 21, 2006

"Dæs"

Eftir langan göngutúr niðrí bæ í sólinni sit ég hér með "mini Babybel" osta og 200 is.kr. rauðvín og slaka smá áður en ég fer að grilla . . . já svona á að njóta lífsins þegar maður er fátækur námsmaður ! ;)

hvað segið þið annars ?

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Ísland

Ég skrapp til Íslands núna um daginn . . var í þrjár vikur en mér finnst ég samt bara hafa skroppið.
Ísland er ágætt, þar býr heimsins besta fólk (fjölskyldan mín og vinir t.d.) og þar er fallegt . .
Á Íslandi sér maður náttúruna, fær hana beint í æð . . hún er ekki falin bakvið fullt af trjám!.
Ég upplifði í dag og gær veðrið sem allir voru að kvarta yfir að væri ekki á Íslandi og mér fannst það barasta doltið of mikið . . málið er að þegar það er gott veður á íslandi þá er það alveg passlegt, ekki 30 stig og allir að kafna (allavega ég) . . það er margt svona á íslandi . . en ekki allt.
Verð á ýmsu er þar alls ekki passlegt og samt eru þar "allir" að keppast við að eiga allt flottara en næsti . . og svo vinna allir eins og brjálaðir til að eiga fyrir öllu draslinu.

. . en það er ekki frá því að með þessari ferð hafi ég aðeins aukið á "heimþrá".
Ég átti ansi gott þrítugsafmæli á "Írskum dögum" á Akranesi. Grill hjá mömmu og svo ball Með Todmobile og Pöpum . . missti reyndar af Pöpunum að mestu vegna þess að Silja greyið snéri á sér hnéð . . en Todmo voru frábær! (Eyþór flottur í að covera Rammstein meðal annars).
Við skruppum upp í Svínadal að veiða sem var gaman . . og ég gerði margt annað skemmtilegt með fjölskyldu og vinum og þakka enn og aftur fyrir það allt.

En eins og alltaf í svona ferðum þá gerir maður aldrei nærri því allt sem maður ætlar að gera og allt í einu er ferðin búin og við tekur að þurfa að kveðja og snúa aftur heim . .
jú ég á heima í Danmörku og það hefur sína kosti líka . .
Málið er bara að ég og litla fjölskyldan mín söknum ykkar allra á klakanum og það er erfitt að fá svona smá "smakk" og þurfa svo að fara aftur.

Þetta hljómar allt eins og ég sé alveg að fara að grenja en svo er nú reyndar ekki . . þið verðir bara að vera dugleg að koma í heimsókn til mín, við borða, við hafa gaman og þá allir glaðir !
luvjú all !

mánudagur, júlí 03, 2006

ég skrifa íslanska . . .

fann þetta á þvælingi um netið. Mögnuð tilraun til þess að tjá sig á Íslensku og einstaklega sparlega farið með punkta og kommur . . njótið :

Evró helginn
Þá er helginn búin evróvisjón búið og silla frænka skít tapaði og Finnland vann sem er gott. Þessi kepni er bara að verða djók Island bara getur ekkert í neinu hvað sem það er eina sem við eigum og getum ju fallegar stelpur rigningu rok og kulda dírt að vesla allt sko og fillerí djamm sektir frá lögguni því löggan hefur ekkert að gera nema mæla borða kleinuhring og drekka kaffi nema þegar fólk er að djamma í bænum og vita ekki hvað það er og birja að lemmja og væla. En já fólk þessi helgi var fín mikið í bænum flestir staðir stappaðir af fólki margir að útskrifast massa stuð frekar kallt reindar en juju geggjað töff tók ekki eftir böggi þessa helginna sem er mjög gott. Já fólk myndir komnar frá helginni tekkið á því frá afmæli hennar Brynju sem var á PRAVDA hún var 20 ára til hamingju með daginn Brynja vinkonna mín og takk fyrir mig

Hit Counter
Hit Counter