blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, júní 30, 2008

Rokk eða aul ?

Á föstudaginn síðasta rámaði mig eitthvað í að það væri einhverskonar útskrift sem ætti að mæta í . . einhver formlegheit í tilefni námsloka. Mig minnti að það væri einmitt þann sama dag sem formlegheitin ættu að eiga sér stað en gat ekki munað klukkan hvað . . var svosem ekkert fullur áhuga að dressa mig upp til að hlusta á ræður og taka við pappír.
Þegar ég hafði skutlað Silju í vinnuna þá lagðist ég í sófann og glápti aðeins á Dissgovverí, fékk mér hádegismat . . og svooo ákvað ég að kíkja í bréfið frá skólanum.
"Athöfnin verður haldin föstudaginn 27. Júní frá 10:00 til 13:00" . . þetta las ég föstudaginn 27. Júní klukkan nákvæmlega 13:00.
Stúdentarnir fá húfu og allt . . ég er ekki einu sinni mað pappír uppá fjögurra ára nám af því ég mætti ekki einusinni ú útskriftina . . var lesinn upp og allt skilst mér.

. . en hei . . ég fæ pappírinn í pósti reikna ég með. . og hann skiptir svosem engu því ég býst fastlega við því að mæta eftir tvö ár þegar ég tek við masternum ;)
Þann pappír ramma ég inn !

þriðjudagur, júní 24, 2008

Júní samantekt

Sko . . ég gleymdi blogginu mínu aðeins vegna anna . . bissí doltið sko.
Ég er að hugsa um að telja bara upp það helsta.
  • Ég skilaði Bachelor skýrslunni mánudaginn 2. Júní og þá ekkert farinn að sofa frá sunnudegi. Ég fékk mér svo einn bjór í tilefni af skýrsluskilum (þó svo að ég hafi ekki verið sérstaklega sáttur við skýrsluna) og það endaði bara með nokkrum fleiri og svo fór ég ekkert að sofa fyrren á mánudagskvöldið . . sofnaði á sófanum með foreldra mína í heimsókn.
  • Gamla settið var í heimsókn í eina viku og ég passaði mig á að hugsa ekkert um skýrsluna á meðan því að vörnin var ekki fyrr en 19. Júní. Við vorum bara á ströndinni ofl. og höfðum það gott.
  • Þann 19. júní var vörnin og ég kláraði hana með 7 í einkun (sem er sama og íslensk 8). Ég var bara sáttur við það því ég hafði enganveginn sinnt verkefninu og skýrslunni nógu vel en vörnin var reyndar góð . . ég er hugsanlega á leið að sækja um patent fyrir hugmyndina sem ég var að vinna að. Mér var ráðlagt það því hugmyndin þótti góð.
  • Sama kvöld fór ég svo á tónleika með Kansas og það voru, vægast sagt, snilldar tónleikar. Þeir tóku "dust in the wind" og fleiri góð lög og enduðu svo á þessu. Þetta er nýleg liveupptaka og er vel í stíl við gæðin sem ég hlíddi á . . eldgamlir karlar og geta þetta allt enn, þó svo að söngurinn sé uppí rassi . . alveg magnað !
  • Kvöldið eftir fór ég á Steve Lukather + band. Þó svo að ég kannaðist ekki við eitt einasta lag þá voru það mjög fínir tónleikar líka. Hann reyndar endaði á lagi sem ég kannaðist vel við . . það var töff.
Ég er semsagt orðinn Bachelor, eða Bakkalár sem mér skilst að íslenska orðið sé.
Það er ágætt en ég er á leið í master í haust svo að þetta er enginn endir á neinu . . ja eða þannig.
En hei . . . ég er á leið til Tyrklands í Júlí . . það verður stuð . . vonandi . . reikna ég með.
Segið þið eitthvað ?

Hit Counter
Hit Counter