Erann ekki sætur :)

Mig langar doltið að eiga einn svona . . . Þetta er svokallaður Albino Ball Python . . sama týpa og ég er með um hálsinn á facebook myndinni . . . bestu gæludýr í heimi ! . . Borðar sjaldan og þegar þú þarft að skreppa í ferðalag þá er bara að setja hann í ísskápinn á meðan . . kalt blóð = leggst bara í dvala. Svo ef hann étur eitthvað sem hann má ekki éta, gæludýr eða krakka nágrannans t.d., þá sést það strax ;)

4 Comments:
Þetta er nú reyndar ekki alveg rétt hjá þér með ísskápin þar sem snákar hafa kalt blóð þurfa þeir að hafa hitaperu eða sólarljós til að halda á sér hita svo þeir drepist ekki....en ég er alveg sammál þér þetta er reglulega falleg skeppna en ég er reyndar meira fyrir kornsnáka því þeir eru þeir einu sem ekki hafa eiturkirtla......kirkjuslöngu myndi ég hins vegar ekki vilja eiga svanga í kringum börnin mín.
P.s. þessi stærð sem þú ert með þarna á myndinni þarf ca tvær kanínur eða þrjár rottur á hálfsmánaða fresti.
kv, ZyZ.
...Eitt en ef þessi tegund þarna á myndinni verður mjög hungruð gleypir hún auðveldlega eigin tegund svo þú getur ímyndað þér hvað hún gerði við börn, hunda ketti eða þig meðan þú sefur ;)
zYz.
Ég hef heyrt af fólki sem hefur sett snákana í skúffu í ískápnum . . . við tókum hitann af skjaldbökunum á meðan við vorum á Tyrklandi. Þetta er furðu lífseigt.
Annars er þetta líklega ekkert sem ég fæ mér í bráð.
Ég lærði það í Manchester að þá væri maður að pína dýrið en heiiiiiiii splittar ekki diff þar sem þúrt bara að grilla með þennan orm hvorteðer ;)
zYz
Skrifa ummæli
<< Home