Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

miðvikudagur, október 01, 2008

Lán í óláni

Ég setti saman lítið reikniforrit í dag til að finna út c.a. hversu lengi ég verð að borga upp námslánin eftir að ég klára skólann . .
Ég reiknaði miðað við heildarlaun frá 600þús og upp í milljón ísl á mánuði . . sem meðallaun yfir æfina á mánuði.
Miðað við þetta verð ég frá 24. upp í 38 ár að borga upp lánið . . !!
Ég útskrifast 34ra ára ef allt gengur vel og byrja að borga af láninu tveimur árum seinna.
Þetta þýðir að ég verð milli sextugs og 74ra þegar ég losna við þetta.
En svo kemur verðbólgan inní þetta . . þannig að ég gæti verið að borga í 150ár og samt ekki klárað. En hinsvegar ef gengið heldur áfram að falla þá er bara málið að vinna hérna úti og fá borgað í Evrum eða dönskum . . eða bara öllu öðru en íslenskum og þá klára ég þetta á nokkrum mánuðum ;)

Nei svona öllu gamni slepptu . . málið er að fá bara lánað nógu andsk mikið ! . . ég verð að borga þetta alla æfi, upphæðin samsvarar c.a. einum mánaðarlaunum (útborgað) á ári og lánið deyr með mér . . . gimmie gimmie gimmie !

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter