Júní samantekt
Sko . . ég gleymdi blogginu mínu aðeins vegna anna . . bissí doltið sko.
Ég er að hugsa um að telja bara upp það helsta.
Það er ágætt en ég er á leið í master í haust svo að þetta er enginn endir á neinu . . ja eða þannig.
En hei . . . ég er á leið til Tyrklands í Júlí . . það verður stuð . . vonandi . . reikna ég með.
Segið þið eitthvað ?
Ég er að hugsa um að telja bara upp það helsta.
- Ég skilaði Bachelor skýrslunni mánudaginn 2. Júní og þá ekkert farinn að sofa frá sunnudegi. Ég fékk mér svo einn bjór í tilefni af skýrsluskilum (þó svo að ég hafi ekki verið sérstaklega sáttur við skýrsluna) og það endaði bara með nokkrum fleiri og svo fór ég ekkert að sofa fyrren á mánudagskvöldið . . sofnaði á sófanum með foreldra mína í heimsókn.
- Gamla settið var í heimsókn í eina viku og ég passaði mig á að hugsa ekkert um skýrsluna á meðan því að vörnin var ekki fyrr en 19. Júní. Við vorum bara á ströndinni ofl. og höfðum það gott.
- Þann 19. júní var vörnin og ég kláraði hana með 7 í einkun (sem er sama og íslensk 8). Ég var bara sáttur við það því ég hafði enganveginn sinnt verkefninu og skýrslunni nógu vel en vörnin var reyndar góð . . ég er hugsanlega á leið að sækja um patent fyrir hugmyndina sem ég var að vinna að. Mér var ráðlagt það því hugmyndin þótti góð.
- Sama kvöld fór ég svo á tónleika með Kansas og það voru, vægast sagt, snilldar tónleikar. Þeir tóku "dust in the wind" og fleiri góð lög og enduðu svo á þessu. Þetta er nýleg liveupptaka og er vel í stíl við gæðin sem ég hlíddi á . . eldgamlir karlar og geta þetta allt enn, þó svo að söngurinn sé uppí rassi . . alveg magnað !
- Kvöldið eftir fór ég á Steve Lukather + band. Þó svo að ég kannaðist ekki við eitt einasta lag þá voru það mjög fínir tónleikar líka. Hann reyndar endaði á lagi sem ég kannaðist vel við . . það var töff.
Það er ágætt en ég er á leið í master í haust svo að þetta er enginn endir á neinu . . ja eða þannig.
En hei . . . ég er á leið til Tyrklands í Júlí . . það verður stuð . . vonandi . . reikna ég með.
Segið þið eitthvað ?

5 Comments:
Til lukku med 7´id!!!!
Hilsen
Steinar
Bara patent og læti, menn eru ekki fyrr komnir með bachelor að þá er bara farið að sækja um patent... Ég er farinn að glitta í villuna, tennisvöllinn og sundlaugina í bakgarðinum..
hey gaur.... til hamingju með árangurinn... á ekki að smella í partý af þessu tilefni...
Til hamingju með áfangann! David Coverdale hefði átt að fá einn Kansasmann lánaðan fyrir Whitesnake giggið hér í Rvík um daginn :)
Til hamingju með áfangann! David Coverdale hefði átt að fá einn Kansasmann lánaðan fyrir Whitesnake giggið hér í Rvík um daginn :)
Skrifa ummæli
<< Home