Helmassaður og tannaður í drasl fyrir páska !
Já ég er víst löngu kominn aftur í milda veðrið í DK . . mjög fínt en dýrt og stutt á ísl . . ekkert sem maður vissi ekki fyrir.
Er að vinna í að setja í skólagírinn en heilsugírinn er á fullri keyrslu.
Byrjaður aftur að lyfta og stefni á að vera nálægt 90kg í sumar . . var bara 78kg þegar ég byrjaði sem er full lítið samanborið við hæðina sem er 191cm. . . eins og er er ég að detta í 80kg svo að það byrar vel . . en kílóin eftir 85kg verða erfið.
Næsta haust verð ég svo kannski að nálgast það sem ég var vorið áður en ég flutti hingað út . . sem er 97kg . . það að sitja á skólabekk er semsagt búið að taka af mér næstum 20kg.
Ég bara hverf ef ég geri ekki neitt.
Ég er nokkuð viss um að ég hafi aldrei farið yfir 10% fitu síðan ég var 2ja. Samt borða ég beikon og rjóma og feitt kjöt og smjör og feitann ost og mikið af ís og súkkulaði og bara allt og mikið af því . . eini sénsinn fyrir mig að halda mér UPPI í kjörþyngd er að lyfta og éta prótein og mikið af öllu öðru . . ætti kannski að láta rannsaka mig.
Ég er annars líka búinn að vera að lesa doltið.
Ég fékk í jólagjöf Harðskafa eftir Arnald Indriðason og er búinn með hana og Mýrina og svo Predikarann eftir Camillu Lackberg . . allt fínar bækur.
Við Silja erum eins og eldgamalt par, komin snemma í rúmið til að lesa öll kvöld . . ja eða mörg kvöld.
Ég varð mér svo úti um myndirnar: Predikarann (á sænsku með dönskum texta) og Mýrina.
Mýrin er fín en aðeins frábrugðin bókinni. Ingvar E. Sigurðs er alveg sérstaklega fínn að vanda . . Hugsanlega er samt betra að sjá bara myndina eða lesa bara bókina . . eða útiloka að það sé tenging þarna á milli og þá er bæði fínt.
Predikarinn var sjónvarpsmynd í tveimur þáttum og bara fúnkeraði ekki nógu vel . . góðir punktar en lykilatriðum sleppt . . mæli með bókinni . . og bara bókinni.
skilda að kommenta ef maður les ! . . nóg að segja "hæ . . las"
blæ í bili

7 Comments:
Skilda að kommenta segirðu!
Þá er best að láta ekki hanka sig á því :)
Svo held ég bara að ég fari að hringja í trommarann okkar hann Jens, til að vita hvort hann sé búinn að tapa þessum söngvara/gítarleikara eða söngvara/hljómborðsleikara, eða hvort hann er búinn að tapa sjálfum sér ehehehe.
Heyrumst,
Palli.
hæ . . las
Hæ! Las. Bæ!
Hæ bró!
bara svo að þú vitir það þá eru kolvetni meira fitandi en mjólkurfita nokkurn tímann kalkríkt fæði hreinsar nefnilega fituna með sér út aftur.
Þannig að þú átt að borða pastarétti með rjómasósum og nóg af því!!!
Svo mundi ég kaupa mér þurkaða ávexti til að éta í skólanum milli mála því það er besta heilafóðrið og þá tekur heilinn ekki alla orkuna/forðann frá kroppnum.
luv, zyz.
já og hnetur, hnetur og rússur í skólann!
Gangi þér vel að massa þig í drasl og megir þú verða helköttaður í sumar.
hæ, las þetta og bæ.
kveðja, pabbi.
En annars þetta með það að geta ekki þyngst, ég kannast ekkert við það frá mér sjálfum, því ég get mjög auðveldlega þyngst og orðið alltof þungur. En hann afi þinn Maggi varð aldrey þungur, var bara alla æfi jafn slank, þó að hann gæti borðað mikið. Þú hefur þessa eiginleika þaðan trúi ég. Ég hitti hann Óskar sem var að læra mekkatronik úti í Sonderborg, í Húsasmiðjunni, hann sagðist vera nýkominn á Skagann, og hann var að koma sér fyrir. ekki meiri komment.
bless, pabbi
Sælir.
Skrifa ummæli
<< Home