Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

fimmtudagur, október 11, 2007

Mánaðarlega bloggið

Ég var næstum búinn að gleyma að ég ætti þetta blogg.
Let me see . . . hvað er að frétta síðan seinast . .

NY ferðin varð ekki . . til að gera langa sögu stutta þá var það Kínverji sem klúðraði málinu.
Ég er hinsvegar að fara til Luxemburg að hitta Dóra . . fer í kvöld og verð kominn á morgun.
Ég tek semsagt næturlest. Ferðin tekur 15 tíma þangað og svo 12 tíma til baka með daglest á mánudaginn. Ég set inn ferðasögu þegar ég kem til baka.

Við erum komin með bíldrusluna á dönsk númer eftir mikið basl. Ég fór svo með hann í mat til að fá "afgiftina" niður (danski bílaskatturinn). Það er hitt og þetta að bílnum sem lækkar verðmæti bílsins og þ.a.l. álagninguna líka.
Ég er svo búinn að laga slatta af þessu sem var að eftir að ég lét meta hann.

Ég sá teiknimynd um daginn sem mig langar að tala um . .
Við fjölskyldan leigðum myndina Barnyard. Aðalsöguhetjan í myndinni er Kú/belja/kýr . . nema að hún er karlkyns, "pabbi" hennar/hans er líka kú.
Það sést bregða fyrir nautum í myndinni líka en þetta eru aðallega kýr samt . . bæði karlkyns og kvenkyns kýr.
Karlkyns kýrnar eru semsagt teiknaðar með júgur . . enginn pungur eða sprelli . . bara júgur . . hlussu júgur ! . . naut eru ekki með júgur !
Ég er ekki að segja að það hefði þurft að teikna pung og sprella í staðin . . bara hafa ekki neitt eins og hefur tíðkast hingað til . . . bara auðan klobba á "karlkyns" nautgripunum.
Ég veit ekki hvort þetta er heimska að halda að kýr séu sér tegund og naut séu annað eða hvort þetta er einhver ritskoðun eða hvað, allavega fór þetta vel í taugarnar á mér.
Kvenkyns kýrnar voru bara með minni axlir og lengri augnahár . . alveg stupid.
Myndin er samt alltílagi fjölskylduskemmtun fyrir utan þetta . . bara þarf að útskýra fyrir krökkunum að karlkyns kýr séu ekki með spena svo að ignoransinn haldi ekki áfram.

þangað til næst . . .
G.S.

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Kannast við þetta að blogga stundum ekkert. En hey ég er að kíkja inn og lesa svo go Gauti go

kv Símon aka Monsi aka Eiríksgötu serðirinn aka Svefnmígandinn

20:53  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er búin að sjá þessa mynd og gat einmitt ekki notið hennar til fulls þar sem þetta með spenana og tennur í efri góm var alveg að gera út af við mig, gott ef beljurnar voru ekki með handska líka .......æ þetta var alla vega alveg til að drepa stemmaran hjá kerlunni sem býr á kúabúinu.

Getur verið að tölvubrellu kynslóðin kunni ekki líffræðina sína?
Fæstir hafa greinilega verið í sveit.

En það er nú ekkert mér þykir samt ógeðslega, viðnnbjóðslega vænt um þig Gauti bró minn og er mjög sátt við að bloggun sé hafin að nýju.

Lifðu í lukku en ekki í krukku, lengi en ekki í fatahengi og stuði en ekki í púl og puði.
Mei´ðe hors bí viþjú.
Brynzyz.

19:47  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey, koma með ferðasöguna! Löv jú ;)

10:55  
Blogger Gauti said...

blogga von bráðar . . far side er alltaf hressandi :
http://members.tripod.com/~damyano/images/Far_Side_101901.JPG

19:10  
Blogger Ingolfur said...

Ferdasaga!!

06:10  
Anonymous Nafnlaus said...

Æ hann er lagstur í dvala aftur..........þessir bangsar.


Brynzyz

09:37  
Blogger Ingolfur said...

Ferdasaga@!!

04:01  
Blogger Gauti said...

já ég er lygari . . sorry

17:00  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter