Brjóttur fótur
Hún Silja mín lenti í óhappi á Laugardagskvöldið.
Það var á "byfest" hér í bæ . . við vorum að labba inn á "fest"-svæðið og á sömu stundu var bíll að aka út frá bílastæðunum . . Silja var að segja eitthvað við mig og labbaði afturábak og á meðan laumaðist bíllinn fyrir aftan hana. Svo þegar Silja snéri sér við steig hún með vinstri fæti fyrir afturdekkið á bílnum og hann ók í rólegheitum yfir löppina á henni þrátt fyrir að hún lamdi í bílinn. Ég hljóp að Silju um leið og á meðan ók bíllinn í burtu.
Ég hringdi í 112 og tveir lögreglubílar og einn sjúkrabíll mættu á svæðið og eftir stutta skýrslutöku frá lögreglu var rokið á sjúkrahús.
Silja var nú hrædd um að það væri verið að gera of mikið mál úr þessu en eftir Röntgen kom í ljós að svo var ekki.
Læknirinn sagði "NOH!" þegar hann skoðaði myndina . . Það var stórt stykki brotið neðst úr aðal beininu niður að ökla (sköflungsbein eða hvaððaheitir).
Þetta þýddi innlögn og skurðaðgerð þar sem þurfti tvær skrúfur til að festa lausa stykkið.
Ég sótti Silju á sjúkrahúsið í dag . . næstu 6 vikurnar verður hún á hækjum.
Það böggar mig að hafa ekki náð númerinu á fjárans bílnum en eins og ég sagði var það Silja sem ég hugsaði um fyrst.
Þegar ég hringdi í tengdó til að láta þau vita af óhappinu kom í ljós að þau voru á leið á Spítala að sækja yngri systur Silju . . hún hafði brotið á sér hendina og það þurfti að negla það saman í aðgerð líka . . tvær brotnar systur á sama deginum . . what are the odds ?
Það á eftir að "pípa" á þær systurnar á öllum flugvöllum semsagt . . allavega verða skrúfurnar ekki teknar úr fætinum á Silju nema þær valdi óþægindum . . verða bara hafðar í.
Ég er að fara í próf á morgun sem var 50% fall í í fyrra og vegna alls þessa hef ég ekki getað lært eins mikið og ég vildi . . kemur allt í ljós á morgun . . "brake a leg" eins og "þeir" segja ;)

7 Comments:
Vó! Það er aldeilis óheppnin sem hefur elt systurnar sama daginn! Merkilegt alveg.
Biðjum kærlega að heilsa Silju, vonandi hefur hún það sæmilegt: fúlt að komast ekki til að kvitta á gifsið ;)
Kær kveðja frá Áló!
hún er reyndar ekki með gifs heldur einhverja nýtísku spelkugræju sem þjónar sama tilgangi . . ógurlegt "júnit" alveg.
og mér gekk bara þrusuvel í prófinu . . gaman að segja frá því :)
The ods are good, ef tvaer systur geta brotnad a sama degi i sitthvoru slysinu i sitthvoru landinu, aetti ekki ad vera erfitt ad rulla upp einu 50% profi... well
Þú ert bara límheili Gauti, greinilegt alveg!
En er ekkert meira að frétta?
Hvernig hefur Silja það?
kv. Dísa & gengið
Silja hefur það sæmilegt . . skrúfur og hefti er eitthvað sem maður kaupir í "jem og fix", ekki eitthvað sem maður á að vera með í fætinum !
Ég tók 9 í stærðfræði . . sæmilegt fyrir tæplega 3ja daga vinnu . . og svo reyndar bara 7 í síðasta prófinu, sem var munnlegt . . stressaðist eitthvað og sagði þvælu
. . á eftir að fá útúr 50% prófinu.
Og hvað... Brjóttur fótur og svo bara búið. Prófin eru búin svo það ætti að vera nægur tími til að rita einhverja vitleysu inn..
Silja litla datt í dý
meiddi sig í fótnum
aldrei varð hún upp frá því
jafngóð í fótnum
Hilsen til allra í familíunni.
Ingvar slettufríi.
Skrifa ummæli
<< Home