Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

þriðjudagur, apríl 17, 2007

Leti

Ég hef ekkert nennt að blogga undanfarið en ef það væri það eina . . ég þyrfti að vera duglegri að læra líka . . þessi skólaleið sem ég datt í á þessari önn er erfið viðureignar og nú styttist í próf.
Páskarnir komu og fóru og ekki litið í bók.
Það er líka erfiðara að sitja inni og læra í þessu veðri sem er búið að vera undanfarið . . við grilluðum meiraðsegja í gær . . nú er hinsvegar að rigna í grillið sem ég á enn eftir að nenna að taka inn !
Að öðru jákvæðara . . það ert búið að bjóða mér í hljómsveit eða prufu allavega . . mæti annað kvöld á æfingu og svo verður séð til eftir það.
Ég hef reyndar engan tíma í þetta núna og er langt frá því að vera í æfingu svo að það er alveg óvíst að nokkuð verði úr . . en það má sjá til.
Ég læri allavega ekki mikið annað kvöld þá . .

Það er komið nýtt dæmi um hvað danskan er að bjaga íslenskuna hjá okkur . . ég kallaði hliðarspegil (á bíl) "síðuspegil" um daginn en Silja kom með annað betra í gær.
Hún var að segja mér frá "saurskriðu" sem féll á Sauðárkróki og skildi svo ekkert af hverju ég lamaðist úr hlátri :)

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vissi alveg af hverju þú varst að hlægja... Fattaði það bara ekki alveg "med det samme"... Öss... Að þú skulir auglýsa þetta um konuna þína... hehehe :D

06:11  
Blogger Ingolfur said...

LOL...LOL... snilld, saurskriða...hehe. Það var annars kominn tími til að þú fórst að blogga aftur. Engar áhyggjur af skólanum, eins og maðurinn sagði "school is for fools" ;)

13:40  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter