Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Blót ofl . .

Ég er búinn að vera voða upptekinn undanfarið að plana þorrablót sem var svo haldið á laugardaginn síðasta.
Það var mikið stuð og vel heppnað að mestu leiti . . hljómsveitin Sviss (Ingvar, Binni og Guffi) ásamt Hlyn (Gleðisveit Ingólfs, Búálfarnir) kom og hélt uppi stuðinu ásamt skemmtistjóratvíburum sem komu alla leið úr höfuðstaðnum til að stýra gleðinni.
Ég blandaði mér í hljómsveitina eftir fyrsta sett og hafði sjálfur mest gaman af, en þó skilst mér að þetta hafi nú bara verið hin fínasta frammistaða hjá mér þrátt fyrir mikið "riðg".

Það sem var ekki gaman var að vakna snemma á sunnudeginum og taka til eftir þetta 100 manna djamm . . . ég með einhverja kvefpest, næstum alveg raddlaus og ílla sofinn.
Við í nefndinni vorum reyndar öll frekar mygluð en flest okkar létu sig þó hafa það að klára það sem klára þurfti.
En hei þetta fær maður fyrir að setja sig í nefnd . . Svaka gaman og ég geri þetta aldrei aftur.
það verður ljúft á næsta ári að sjá ekki um neitt . . bara mæta borða og drekka og liggja svo á sófanum á sunnudeginum.
Mér allavega tókst það sem ég ætlaði . . að setja mig í þorrablótsnefnd til að flytja vini mína inn til að spila.
Nú er spurning að fara að gera eitthvað í þessum skóla . . það er doltið búið að sitja á hakanum.

Að lokum eru hér skilaboð frá Ungverska rapparanum Speak

6 Comments:

Blogger Óskar þór said...

Ég kom ekki eins og glöggir tóku eftir, sorry Gauti ég varð að hjúkra kellunni

08:45  
Blogger Gauti said...

það þarf stundum . . bara næst þá ;)

11:43  
Anonymous Nafnlaus said...

Kvittun.

14:27  
Anonymous Nafnlaus said...

Speak!! Gauti á hverju ertu? Þetta er það gallsúrasta lengi......

Eníhjú, læf is a blidzzzzz mæ kvizzmaste bróv
jó jó jó jó
æ ein nó hó
ó nó nó nó nó
só
jú gó
tú jor lærdómsfló
og það veeeel.

Brain Zyzta.

22:23  
Blogger Gauti said...

hvað meinarðu ? . . . þetta er snillingur . . ég ætla að kaupa alla diskanan hans ! . . ;)

16:02  
Anonymous Nafnlaus said...

Jú, þakka þér fyrir að troðast í nefnd til þess eins að ég fái fríkeypis utanlandsferð, bjór og Gajol. Mér fannst ekki littl gaman, hefði bara viljað vera lengur.

Bið að heilsa öllum og ÁFRAM SÖNNEBÚRG!

Ingvar.

09:12  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter