Jahá . .
Veit ekki alveg hvar ég á að byrja . . . Snilldartónleikar ! . . og hér er af hverju :
Byrjum á byrjuninni . . Fyrstur steig á svið eldgamall blökkumaður sem kallaði sig "The Chickenman" (af því hann átti einu sinni hænur) . . Hann var semsagt upphitunaratriðið og leit doltið út fyrir að Seagalinn hefði hirt hann upp af götuhorni í Memphis.
Hann var með tvo heimasmíðaða gítara, annan sem leit út eins og Banjo með gítarháls og hann kallaði hann líka Ganjo. Hann var smíðaður úr húsi utan af viftu (skildist mér, hann talaði óskýrt) og svo hafði hann klesst í hann pickup og hálsi af gömlum Ibanez.
Seinni gítarinn var vindlakassi og poolkjuði með gítarhaus (án gríns). Hann spilaði á hann með slide.
Báðir voru þeir "rafmagns" semsagt og skreittir eins og blökkumönnum einum er lagið . . allir í glingri . . . hann sagði eftir að hafa kynnt okkur fyrir gíturunum sínum :"if it sounds home made, thats because it is".
Þessi "Chickenman" var barasta fínasti blúsari og blúsinn sem hann tók um Hana sem hann átti einusinni er óvenjulegasta (og jafnvel skemmtilegasta) blúslag sem ég hef heyrt. Hann talaði líka mikið á milli laga og samkvæmt honum þá þekkti afi hans alla þekktustu blúsara fyriri tíma og þeir komu allir og spiluðu með honum "on his front porch".
Þegar "Hænsnamaðurinn" hafði lokið sér af bað hann okkur um að gera okkur klár fyrir "the Mojo Priest" . . . það var smá hlé og rótararnir kláruðu lokasándtékk og svo steig sjö manna blökkuband á svið : 2xGítar, Bassi, Trommur, Hljómborð og 2xbakraddir.
Þau byrjuðu að spila og báðu okkur um að klappa og hafa hátt svo að "the Mojo Priest" kæmi á svið . . þetta band var með þéttari böndum sem ég hef séð live . . blökkukonan á trommunum var þétt í tvennum skilningi en þó þéttari á trommunum en hún var þétt . . uuu . . já.
. . allavega . . eftir stuttan tíma af hrópi og klappi steig kappinn sjálfur á svið klæddur japanskri silkiskyrtu með hárið í tagl og rótarinn kom hlaupandi með Gibson og hengdi áann.
Seagal er með mjög djúpa og ráma rödd og það skildist ekki mikið hvað hann söng . . ekki heyrðist heldur nógu vel það sem hann gerði á gítarinn enda var það ekki mikið.
Allt sem að hann gat ekki bætti bandið á bakvið hann mörgum sinnum upp. Blökkuparið í bakröddunum voru meira með- eða aðal-söngvarar og bæði með svakalegar raddir.
Þegar svo kom að því að Steven kynnti bandið og gaf hverjum liðsmanni tíma til að sýna sig þá datt kjálkinn á mér niðrá bringu . . Báðir gítarleikararnir voru brill og ég hefði viljað heyra meira í þeim gegnum tónleikana og minna í gítarnum hans Steven.
Bassaleikarinn var með sex strengja bassa og "Grúv" er eina orðið í orðabókinni hans, bara snilld ! . . og það sama má segja um trommur og hljómborð.
Þegar "bakraddaparið" spreitti sig fékk ég bara gæsahúð. Þau tóku hver sína "raddæfinguna" og þvílikt raddsvið og power !
Tónleikarnir fá fjórar og hálfa af fimm stjörnum í skemmtanagildi og þar af á Steven þessa hálfu fyrir að vera jafnvel enn meira "korní" en myndirnar hans . . og sérstaklega þá fyrir að taka "Wild Thing" sem uppklappslag . . Við Silja komum út í góðum fíling og þá borgaði þetta sig allt.

11 Comments:
Detta mér allar dauðar... Þetta virðist hafa verið stuð! Var að tékka á honum á YouTube. Notaði hann bara þumalinn til að plokka á strengina? :)
já hann notar bara þumalinn og er bara svona lala spilari.
Alveg sind að láta hina tvo fara til spillis í undirspili.
Við Silja tókum nokkur videoskot á símann hennar sem ég set hugsanlega inn á youtube og set svo inn link hér ;)
Bara gaman.
Ingvar.
Hata að hafa ekki verið með ykkur.
Luv yah.
Sérdeilis ánægjulegt heyrist mér, ég er alveg til í að koma og leika við ykkur drengi næstu helgi, þigg það með þökkum
Hljomar eins og sannkollud bugibugi stemming
já nú bíður maður bara eftir að Chuck Norris komi og haldi tónleika ;)
Fyrir allan peninginn sem sagt....það var gaman að það var gaman......hafðu áfram gaman...
kv,zyz.
Ég er bara ekki að komast yfir það að Seagalinn sé tónlistarmaður haha:D:D en svona er þetta bara... fæ ég að lúlla á milli ykkar hjóna ef ég kem í skóla í danaveldi hííhí
nei . . en þú mátt koma í heimsókn . . oft !
Ætlarðu að lifa á þessu Seagal dæmi það sem eftir er? Er virkilega ekkert meira að frétta? Á ekki að blogga meira, þú hefur kannski ákveðið að hætta á Seagal toppnum?
kv. frá Áló
Skrifa ummæli
<< Home