Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

miðvikudagur, janúar 10, 2007

Hitt og þetta að frétta . .

Við skiluðum af okkur skýrslunni korter fyrir hádegi í dag . . mikill léttir það.
Nú er bara að verja þvæluna, sem maður skrifaði, þann 18. og þá er ég stikkfrí fram í feb.

Ég þarf reyndar að plana Þorrablót sem verður haldið þann 10. feb . . það fer nú einhver tími í það . . Ég er búinn að tala við Ingvar um að koma með bandið sitt og Ingi Valur ætlar að slást í hópinn . . þetta gæti orðið gaman . . alls ekkert víst að það klikki ;)

Silja mín á afmæli í dag ! . . til Hamingju !

Þó að hún ætti afmæli fór hún samt í minningargönguna núna áðan vegna morðanna hér í bæ um daginn . . hræðilegir atburðir og erfitt að sætta sig við að einhver sé fær um svona lagað . . líka óþægilegt þegar svona gerist í næsta nágrenni við mann. Þá er þetta ekki bara enn ein fréttin utan úr heimi.

Ég er annars bara hress og feginn að vera heill á geði með yndislega fjölskyldu.

2 Comments:

Blogger Ingvar Valgeirsson said...

Til lukku með kerlinguna.

Jú, fréttirnar af þessum hræðilegu atburðum hafa líka verið talsvert í umræðunni hér. Vægast sagt ógeðfellt, en illu heilli það algengt að menn eru hálfpartinn hættir að kippa sér upp við þetta. Fólk er bara svo sjúkt í höfðinu oft, eitthvað.

En svona eru við ekki, verum bara til friðs og góðar fyrirmyndir fyrir hina vitleysingana. Hananú!

14:46  
Anonymous Nafnlaus said...

Er það ekki pínu geðveiki að halda að maður sé ekkert geðveikur sjálfur... ;)
En já.... Hræðilega sorglegt.. en þetta var ekkert smá falleg ganga...

05:55  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter