Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

sunnudagur, nóvember 12, 2006

Ammillii

Dagurinn sem sem aldur dóttur minnar er mældur eftir er í dag . . hún á semsagt af-mæli :)
Af hverju er þetta ekki bara "fæðingardagur" eins og allstaðar annarstaðar ?

Allavega er hún Kristjana Íva mín 2ja ára í dag og hún er rosa spennt og montin yfir því !
Það var um hádegisbilið fyrir tveimur árum sem hún kom í heiminn rauð og krumpuð og ég grét af gleði eins og smástelpa . . gaman að segja frá því.

Hér er að lokum sorgarsaga sem endar vel :
. . Við Silja erum búin að vera í vandræðum með sófann okkar (sem Silja valdi).
Hann er úr ljósbrúnu strigaefni sem er svo langt frá því að vera barnvænt að það hálfa . .
Sófinn er semsagt allur blettóttur og eftir margar árangurslausar tilraunir til að þrífa hann þá ákváðum við að reyna að lita hann bara dökkbrúnann . . okkur þótti það góð hugmynd þegar við fengum hana . . ekki lengur !
Það átti í fyrsta lagi að vera ekkert mál að taka áklæðið af . . bara rennilásar og af (sagði sölumaðurinn þegar við keyptum hann og við spáðum ekki meira í því).
Ó nei . . það þurfti líka að taka fæturna af og svo tóku við c.a. 500 hefti ! . . einhver alveg misst sig með heftibyssuna í faktoríunni !
Eftir allt vesenið þá tókst litunin svo vel að nú lítur sófinn út eins og hópur af kolanámuverkamönnum hafi haldið kaffipásu í honum ! . . og svo situr áklæðið ekki nærri eins vel . . alveg glatað !
En í gær kom inn um lúguna bréf frá skattmann á ísl . . við erum að fá smá upphæð til baka frá skattinum . . it was a sign . . við fórum út og keyptum leddara.
Það er forljótur sófi til sölu ef einhver vill :)

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

til hamingju með dótturina

13:00  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með litlu snúlluna.
kys og kram til hennar og ykkar frá okkur hér,
Dísa, Steinar & co

20:36  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með stelpuna



Ps
Hvað hvað hafðir þú hugsað þér að fá fyrir sófan?

13:57  
Anonymous Nafnlaus said...

Þér óskum vér landar yðar til hamingju og sláum til blóts til heiðurs þeim aldri er dóttur yðar hafi náð.

08:32  
Blogger Gauti said...

takk allir :)


Annars kom Magga hans Jóa með snilldar hugmynd . . gamli sófinn fer bara útá svalir, það er fínn staður fyrir ljótann sófa og verður snilld í sumar ! (erum með yfirbyggðar svalir sem hægt er að loka sko).

16:47  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter