Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, október 30, 2006

Extra! Extra! .. Read all about it !

Ég keypti margumtalað "Extrablað" í gær þar sem í er greinin um íslenskt efnahagslíf og hvernig "við" íslendingar erum allir mafíósar sem stundum peningaþvott og séum bara útibú frá Rúsnessku mafíunni . . ekkert annað en fordómar og alhæfingar !
Bara öfund segi ég . . Danir sofnuðu á verðinum og nokkrir sniðugir íslenskir gripu tækifærið.

Þegar ekki tekst að skemma allt með því að halda því fram að við stöndum á brauðfótum með þetta alltsaman þá á bara að moka skít !
Það tókst nú samt að skemma smá því krónan veiktist og það bitnar skemmtilega á íslenskum námsmönnum í danmörku (eins og mér) sem fá lánið sitt frá íslandi.

það eru allavega einhverjir að láta í sér heyra með þetta eins og þessi ágæti íslendingur:
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1231601

það sem pirraði mig líka í þessu sama blaði var grein um einhverja danska strípibeyglu sem var að gefa út bók (danska útgáfan af Jordan greinilega)
. . Allavega talar hún um í þessari "ævisögu" sinni (konan er rétt skriðin yfir þrítugt) að fyrrverandi kærastinn hennar hafi verið að lemja hana eitthvað og hvaðan haldiði að hann hafi verið ?
Júbb hann er íslendingur og heitir Kyle ! . . þetta er einhver blökkumaður og svipað mikið íslenskur og Kio Briggs !
Þessi Kyle fékk allavega dóm og var vísað úr landi "heim" til íslands !

"Við" íslendingar erum semsagt að berja konurnar okkar þegar við erum ekki að þvo peninga og taka yfir heiminn.

10 Comments:

Blogger Gauti said...

vinna ? . . hvað er það ?

14:40  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er reyndar hellingur til í þessu með mafíuna. Hvar sækir maður umm hjá þeim? Best að skella sér í mafínua og berja þennan kyla fyrir að setja óorð á landið á erlendri grundu. Halda svo áfram að vera gersamlega fyrtur einstaklingur.

ps. var til mynd af þessari gellu Gauti??

14:57  
Blogger Ingvar Valgeirsson said...

Eins og einn KB-banka-kallinn benti á í úbartinu áðan er málið hið skrýtnasta. Vegna tvísköttunarsamninga milli Klakans og Danaveldis er ekki skattur greiddur af gróða KB (sem á fyrirtæki að nafni FIB)þar í landi og hvers vegna ætti þá KB að reyna að fela gróðann í svissneskum og caymaneyskum (asnalegt orð, caymaneyskum... caymönskum... ) bönkum - sérstaklega þegar ekki króna hefir verið greidd af umræddum fyrirtækjum í arð? Eins talar blaðið mikið um meint skattsvik íslensku "mafíósanna" og er svo yfirfullt af auglýsingum vændiskvenna og annarar kynlífsþjónustu, sem væntanlega er rekin sem mest svart.

Við vitum að jafnaðarstefnan er allsráðandi í Danaveldi, allur lúxus er skattlagður upp í rauf og þeir sem skara fram úr eru litnir hornauga. Allir eiga að vera jafnir og ef einhver leggur hart að sér og græðir er það hirt af honum í formi skatta á einn eða annan hátt. Því er stutt í öfundina eins og sjá má.

17:56  
Blogger Gauti said...

heir heir !

19:25  
Anonymous Nafnlaus said...

Rétt Ingvar aldrei má ein eða neinn njóta sín án þess að vera að gera eitthvað dúbíus. En spurning um að finna Kyle kafarabúningadrsluna og senda´nn í bútum á haf út

20:27  
Blogger Elvar said...

sko eftir nokkur ár kemur pólskur milli(já þeir eru til) og kaupir smá í þessu eða hinu. Við verðum voða hissa og bregðumst við eins og Danir, kannski verr. Ef hér verður hægristjórn, sem er líklegt, þá blandar hún sér í málið. Forsætisráðherra lætur einhver miður falleg orð falla í garð hins Pólska efnahagslífs í nýjum magasínþætti Unnar Birnu, sem hrökklaðist úr hæstarétti vegna kynferðislegrar áreittni. Einhver gamall kall káfar á henni í miðju réttarferli, hún kærir en er látin víkja úr embætti. Hér og Nú fær einkaviðtal við Unni. Sprenging verður á markaði slúðursins og einhver ævintýramaðurinn stofnar nýtt slúðurblað sem ber nafnið Halló og sver sig frekar í ætt við gulu pressuna í Bretlandi. Þar fáum við fréttir að meintu sukki pólskra fjárfesta og annarra mislyndismanna sem virðast ganga þessa jörð einungis með þeim tilgangi að stela og meiða. En það virðist vera þjóðareinkenni og regla frekar en undantekning.
vittu til.

10:09  
Blogger Gauti said...

semsagt við VERÐUM hugsanlega ekkert betri :)
Það er samt alltaf meira gaman að "einblína bara á flísina og taka ekki notice af bjálkanaum"

það eru allir fífl nema ég ! ;)

18:03  
Blogger Elvar said...

hver er flísin og hver er bjálkinn?

05:28  
Blogger Gauti said...

Þetta er nú upphaflega úr Biblíunni (að taka eftir flísinni í auga náungans en sjá ekki bjálkann í eigin auga) . . en ég var reyndar að vitna í "Með allt á hreinu" þar sem Harpa Sjöfn afbakar þetta svona skemmtilega.

Maður á víst ekki að einblína á galla annara því stærstu gallarnir gætu verið hjá manni sjálfum . . þýðir þetta circa

. . og þá hefur þú/þið það :)

15:57  
Blogger Pippi said...

Bloggaðu og segðu oss hvað er að gerast í lífi ykkar þaddna í Bölvunar-skora-stig-inu ykkar.(Damn-mark)

22:22  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter