Vinstrifótarblús

Ég fékk Silju til að smella mynd af dýrðinni.
Ég geng nú um í tveimur sokkum á "einarri", semsagt þremur í allt, af því ég á ekki neitt teygjubindi og ég nenni ekki í apótek eða til læknis.
Þótt ótrúlegt sé þá er ekert mál að hjóla svona en svo haltra ég um allt uppí skóla og hér heima.
En um leið og ég er búinn að jafna mig ætla ég að mæta aftur í körfubolta . . svona er maður klikk :)

9 Comments:
http://www.dundurfrettir.blogspot.com/
yess . . you just rub it in . .
ég get ekki mætt á tónleikana eins mikið og mig langar Pétur minn af því ég verð ekki á landinu . . og ég er í miðjum prófum á þessum tíma líka :(
Hey - þér að kenna að vera að vaða til útlands frá öllum vinum þínum bara til að læra eitthvað. Alveg ömurlegur vinur, að fara svona frá manni þegar maður þurfti mest á þér að halda. Svo hálfdrepurðu þig á íþróttaóreglu og það í einhverri blökkumannaíþrótt.
Drullastu bara heim og fáðu þér vinnu!
nenni ekki að vinna . . þessvegna fór ég að læra ;)
kannast við svona meiðsli :)
Þessi litur klæðir þig bara ágætlega enskan mín.
Bryn.
jám . . nú er bólgan að mestu farin . . liturinn er enn og þetta er miklu meira vont . . alveg pirrandi !
. . en eins og Ingvar sagði, mér að kenna :)
Aftur í körfu segiru... Hmmmm.... Ég fer bráðum að halda að þú sért að þessu bara til að fá samúð! Kemur næstum alltaf krambúleraður heim! ;)
Meinar hann ekki að hann þurfi að fara í körfu eins og ungbörn er höfð í svo hann geti ekki skaðað sig meir?????
Bryn
Skrifa ummæli
<< Home