Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, febrúar 19, 2007

Til hamingju með daginn Magnús Ólafsson

. . ég er vanur að halda bolludaginn hátíðlegan, en þar sem ég bý í asnalegu landi með bakarí sem sameinast um að hafa lokað á mánudögum þá er það frekar erfitt.
Mig langar í bollurnar hennar mömmu !
Í fyrra reyndum við að gera bollurnar eftir uppskrift frá mömmu en þær urðu helst til flatar en samt mjög bragðgóðar . . best hefði verið (finnst mér) að hafa Royal-búðing í þeim en hann fæst auðvitað ekki í DK !
Í ár vorum við bara sein að fatta og ég ætlaði að redda hlutunum núna áðan með því að skreppa í bakarí . . en þá átti maður að fatta það í gær ! . . allt lokað í dag . . fíbbl þessir bakarar!
Ég endaði á að fara í Superbrugsen og kaupa kleinuhringi . . attlæ en ekki það sama.

Í gær var semsagt svokallaður "Fastelavn" sem er svona öskubolludagur . . þá koma krakkarnir í hverfinu í búningum og banka uppá hjá manni, syngja eitthvað leiðinlegt lag mjög ílla og ætlast svo til að fá nammi fyrir.
Á Fastelavn eru líka borðaðar bollur . .
þetta átti maður bara að fatta og ég verð semsagt bara að bíta í súran kleinuhring.
Ég klikka ekki á þessu aftur !

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Magnús Ólafs er orðin grannur svo þessi bolludagur er eiginlega markleysa.


Bryn.
P.S.Maður fær illt í magann og prumpuna af bollum.....en ég get svo sem sent þér eina í pósti ef þú vilt.

20:45  
Blogger Gauti said...

já smelltu einni í umslag og settu í skip ;)

09:53  
Blogger Ingolfur said...

tu kanski sendir tvær fyrt tu ert ad tessu a annad bord... væri alveg til i ad fa sma prumpu af bollum

22:23  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter