Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

þriðjudagur, janúar 01, 2008

Gleðilegt ár öll sömul og takk fyrir gamla

. . . ég veit ég veit . . bloggarinn í mér sofnaði aðeins en ég er búinn að vekja hann aftur.
Ég ætla að reyna að vera virkari á þessu nýja ári . . 2008 . . shit . . time is fun when your having flies ! . . og talandi um það þá er ég að missa mig yfir einsoghálfsárs gamalli plötu með Muse að nafni Black Holes & Revelations . . betra seint en aldrei . . en þetta er alveg langbesta plata sem ég hef heyrt lengi ! . . lagið Assassin er til dæmis alveg yndislega brútal og það er doltið magnað að á sömu plötu sé að finna þetta lag . . sjaldgæft og gaman að detta niðrá plötur sem eru svona góðar í geng . . skil ekki að ég hafi ekki tékkað á henni fyrir löngu.

Það er annars allt fínt að frétta af mér og okkur . . öll próf yfirstaðin og staðin . . Silja að vinna endalaust í Baby Sam . . eiginlega alltof mikið finnst mér . . en það gerir það að við eigum fyrir "salti í brauðið" eins og Bubbi sagði . . og bytheway rosalega verður aldrei þreytt að gera grín að Bubba . . ég hló hvað mest að þeim parti skaupsins . . og bara alveg ágætt skaup reyndar.
Fínt að geta "streamað" þetta svona frá ruv.is þó maður hafi nú ekki verið með í öllum bröndurunum.
Næst á dagskrá hjá okkur er að redda vegabréfi fyrir Ívu svo að við komumst til Íslans fljótlega . . það er komið eitt og hálft ár síðan . . alltof mikið !

Megi allir hafa það gott þar til næst
blæ í bili . . og endilega kommentisti í döðlur !

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Smà komment handa þér... Svona af þvì að ég sé þig "aldrei" þvì ég er alltaf að vinna! Luv u babe ;-) U know I do magic! Hehehe

18:45  
Anonymous Nafnlaus said...

Gliligt ar þi líka!

knús og kram og velkomin til blogglífs,
Brynzyz.

08:57  
Anonymous Nafnlaus said...

P.S. var loxins að skrá mig áidda facebook dæmi.

Brynzyz.

12:23  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja er verkefninu þá lokið?

Brynza

08:08  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter