Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, maí 05, 2008

4x4 . . allt er þá fernt er

Ég neiddist til að vera í fríi á föstudaginn . . Krakkarnir voru í frí af því það var annar í uppstigningardegi en Silja var að vinna.
Þar sem það er komið sumar í Sønderborg með tilheyrandi góðviðri þá ákvað ég að fara í göngutúr með krakkana.
Við röltum niður að skútuhöfn þar sem er leikvöllur. Þegar við komum þangað þá lagðist ég aðeins í grasið á meðan krakkarnir léku sér.
Eftir stutta stund kom Kristjana Íva til mín og vantaði að losna við sand úr skónum og þegar ég hafði lagað það þá tók ég eftir að ég sat í miðri smárabreiðu og að ég horfði beint á fjögralaufa smára. Ég hef einusinni séð sollis áður og fannst þetta doltið magnað.
Ég tók smárann upp og sýndi Óla hann og útskýrði fyrir honum að þetta væri merkilegt af því smárar væru venjulega bara með þrjú lauf.
"Sjáðu bara, þeir eru allir með þrjú lauf . . uu . . ja nema þessi" sagði ég um leið og ég fann annan !
. . augnabliki seinna rak ég augun í þriðja !! . . og þegar ég var að senda Silju sms um þetta þá fann ég fjórða !!! . . . Ég fann fjóra 4ralaufa smára án þess að vera spes að leita, ég bara var að horfa í kringum mig.
Samkvæmt wikipedia eru 10000 þriggjalaufa á móti einum fjöguralaufa . . og svo þarf að finna þá . . og þetta er bara ein súpa af laufum.
Hverjar eru líkurnar á að finna fjóra á sama litla blettinum án þess að vera að leita spes og á innan við tveimur mínótum ?
Svo er spurningin, er ég bara heppinn að finna smára eða fylgir þeim einhver heppni . . . ég læt ykkur vita . . . mér líður allavega eins og ég sé heppinn, og leið þannig áður en þessir smárar komu til sögunnar.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hversu langt frá kjarnorkuveri býrðu?

HaM

10:52  
Blogger Gauti said...

Engin kjarnorkuver hér . . Danir nota bara kol og vindmyllur.
. . og Smárarnir eru strax farnir að virka því í gær leysti ég vandamál í Bachelorverkefninu sem ég er búinn að vesenast með í 3 vikur !

07:32  
Anonymous Nafnlaus said...

til hamingju með lausn vandamálsins! Þá áttu bara inni þrjú höpp! það er ekki alveg ónýtt.

11:16  
Anonymous Nafnlaus said...

Og þarna lá ég í grasinu og var ekkert að leita að smárum en fann samt fjóra, gaman af því.
Skýrðir þú þá eitthvað bara svona til að þekkja þá hvern frá öðrum?

kv Vignir

13:32  
Blogger Gauti said...

jebb . . þeir heita Smári, Leifur, 4cents og 4-pac . . . ;)

19:17  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú ekkert.... ég hef verð heppinn alveg síðan ég skráði mig í hreppinn.

Til hamingju ananas

zyz piss kúkur og piss

21:13  
Anonymous Nafnlaus said...

Heeppiiinn!!!

Hilsen!
Steinar

05:30  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter