Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

miðvikudagur, mars 05, 2008

Aðeins of . .

Ég hélt að enginn nennti að lesa þetta lengur en svo virðist ekki vera . . . þá er bara að halda áfram að segja frá sér :)

Ég er kannski aðeins of brjálaður í heilsuræktinni . . allavega þá sagði líkaminn stopp í gær.
Ég er búinn að vera að fara 4 sinnum í viku (mán, þri, fim og lau) í ræktina og svo er karfa á miðvikudögum . . . ætti að vera nóg til að koma mér í þönder form.
En í gær semsagt varð ég bara drulluslappur sem endaði á heitu baði, verkjatöflum og "í háttinn klukkan átta" eins og í laginu.
Ég tók aðeins of harkalega á því á mánudaginn og fann fyrir því í gær en fór samt aftur að lyfta.
Svona er að vera klikk . . . búinn að gera plan og það stoppar mig ekkert í að fylgja því.
Ég er allavega alveg hress í dag og ætla í körfu á eftir.

Núna er ég líka búinn að gera vikuplan fyrir bachelor projektið mitt og vonandi verð ég eins harður að fylgja því.

Svo þarf ég að fara að spila eitthvað líka, alveg klæjar í puttana . . alltaf sama ruglið í þessum trommurum.
Það er líka staðreind að ef maður leggur í fatlaðra stæði og skilur eftir trommukjuða ofan á mælaborðinu þá fær maður ekki sekt ;)

3 Comments:

Blogger Sigurjón said...

Hey!
Ég fyrstur.

23:53  
Anonymous Nafnlaus said...

bíddu ertu á amfetaminsterum??
Hvaðan fékkstu alla þessa orku??......ég meina læra, lyfta, spila, lyfta meira, körfubolti, börnin, skólinn, lyfta ennþá meir, konan (vonandi gleymirðu henni ekki)meiri skóli og meira að segja tími til að vera lasin og fara í bað!

Gangi þér vel en mundu bara máltækið: Betri er hálfmassaður maður en helmassaður taugasjúklingur.

kv, Zyz

19:27  
Blogger Gauti said...

já ég er kannski pínku ponsu over the top . . enda fór ég aðeins of langt á laugardaginn og skemmdi eitthvað í öxlinni á mér . . en það er að lagast.
Ég skal reyna að róa mig .. en það er ekki alveg minn stíll í svona.

20:26  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter