Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

föstudagur, maí 16, 2008

Smári fjári

sko . . . . annaðhvort er andskotann ekkert að marka þetta yfirþriggjalaufasmárasjaldgæfnisheppnisrugl . . eeeeððððaaa . . ég er heppnasti maður í heimi ! . . og þá aðallega í smárum . . jeii !
Égf verð að játa að undanfarið hef ég kannski horft aðeins meira niður í grasið ef ég sé smárabreiðu . .breyðu . . whatever. . . en það hefur bara verið til að sanna eða afsanna það að þetta sem gerðist um daginn hafi verið spes.
Allavega þá stóð ég fyrir utan hjá Jóa í dag að spjalla (við hann sjálfan) og var að horfa niður í blettinn fyrir utan hjá honum . . . og viti menn . . þar var einn fimmlaufasmári !
. . og svo var annar og annar og annar þar til ég var með 6 fimmlaufasmára og átta fjögralaufa.
Ég bað Jóa vinsamlegast um að leita og sjá hvort hann findi eitthvað og hann fann einn.

Er þetta bara ég eða . . er ég smáranörd . . eru þetta gróðurhúsaáhrif . . varð kjarnorkuslys í Sönderborg . . . á ég að hlaupa á eftir næsta regnboga sem ég sé í von um pott af gulli ?

4 Comments:

Blogger Ingolfur said...

Þú ert nörd, sem hefur augljóslega allt of mikinn tíma til að eyða í vitleysu!

21:42  
Anonymous Nafnlaus said...

Ertu viss um að þetta hafi ekki verið sveppir og þú sért bara í annarlegu ástandi núna ? ;o)

....en ef þú ert að spyrja mig hvort þú sért heppin? Þá er svarið já.
...Þú átt fallega og góða konu, yndisleg og heilbrgð börn, allt lífið framm undan með mikla menntun að baki og viljan að vopni.
Þú ert stálhraustur og heilbrigður sjálfur að undanskildum þessum nokkru sellum sem þú tapaðir í áður umræddri sveppavímu......svo hei! Hættu að pæla í þessum smárum, faðmaðu spúsu og spírur og vertu hress og hamingjan og heppnin mun fylgja þér um ókomna tíð.
Luvja zyz ;o)

21:24  
Anonymous Nafnlaus said...

...Og eitt enn....eins og segir í gömlum dægurlagatexta....

Horfðu til himins HIMINS!
Með höfuðið hátt,
horfðu til heimsins
úr höfuð átt!

......og hættu að horfa svona niður í grasið.....já og smárana.

21:28  
Anonymous Nafnlaus said...

já og ekki svara mér með því að nota annan dægurlagatexta með sömu grúbbu sem er á þessa leið....

Frelsið er yndislegt ég geri það sem ég viiiil..........

Luv luv luv, Zyz

P.S. Betri er luv en ruvl.

21:30  

Skrifa ummæli

<< Home

Hit Counter
Hit Counter