blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

föstudagur, maí 16, 2008

Smári fjári

sko . . . . annaðhvort er andskotann ekkert að marka þetta yfirþriggjalaufasmárasjaldgæfnisheppnisrugl . . eeeeððððaaa . . ég er heppnasti maður í heimi ! . . og þá aðallega í smárum . . jeii !
Égf verð að játa að undanfarið hef ég kannski horft aðeins meira niður í grasið ef ég sé smárabreiðu . .breyðu . . whatever. . . en það hefur bara verið til að sanna eða afsanna það að þetta sem gerðist um daginn hafi verið spes.
Allavega þá stóð ég fyrir utan hjá Jóa í dag að spjalla (við hann sjálfan) og var að horfa niður í blettinn fyrir utan hjá honum . . . og viti menn . . þar var einn fimmlaufasmári !
. . og svo var annar og annar og annar þar til ég var með 6 fimmlaufasmára og átta fjögralaufa.
Ég bað Jóa vinsamlegast um að leita og sjá hvort hann findi eitthvað og hann fann einn.

Er þetta bara ég eða . . er ég smáranörd . . eru þetta gróðurhúsaáhrif . . varð kjarnorkuslys í Sönderborg . . . á ég að hlaupa á eftir næsta regnboga sem ég sé í von um pott af gulli ?

mánudagur, maí 05, 2008

4x4 . . allt er þá fernt er

Ég neiddist til að vera í fríi á föstudaginn . . Krakkarnir voru í frí af því það var annar í uppstigningardegi en Silja var að vinna.
Þar sem það er komið sumar í Sønderborg með tilheyrandi góðviðri þá ákvað ég að fara í göngutúr með krakkana.
Við röltum niður að skútuhöfn þar sem er leikvöllur. Þegar við komum þangað þá lagðist ég aðeins í grasið á meðan krakkarnir léku sér.
Eftir stutta stund kom Kristjana Íva til mín og vantaði að losna við sand úr skónum og þegar ég hafði lagað það þá tók ég eftir að ég sat í miðri smárabreiðu og að ég horfði beint á fjögralaufa smára. Ég hef einusinni séð sollis áður og fannst þetta doltið magnað.
Ég tók smárann upp og sýndi Óla hann og útskýrði fyrir honum að þetta væri merkilegt af því smárar væru venjulega bara með þrjú lauf.
"Sjáðu bara, þeir eru allir með þrjú lauf . . uu . . ja nema þessi" sagði ég um leið og ég fann annan !
. . augnabliki seinna rak ég augun í þriðja !! . . og þegar ég var að senda Silju sms um þetta þá fann ég fjórða !!! . . . Ég fann fjóra 4ralaufa smára án þess að vera spes að leita, ég bara var að horfa í kringum mig.
Samkvæmt wikipedia eru 10000 þriggjalaufa á móti einum fjöguralaufa . . og svo þarf að finna þá . . og þetta er bara ein súpa af laufum.
Hverjar eru líkurnar á að finna fjóra á sama litla blettinum án þess að vera að leita spes og á innan við tveimur mínótum ?
Svo er spurningin, er ég bara heppinn að finna smára eða fylgir þeim einhver heppni . . . ég læt ykkur vita . . . mér líður allavega eins og ég sé heppinn, og leið þannig áður en þessir smárar komu til sögunnar.

Hit Counter
Hit Counter