blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, febrúar 26, 2007

Hvað eru margar hliðar á þríhyrningi . . ?

Ég rakst á þetta skemmtilega video þar sem enn og aftur kemur í ljós hvað íbúar Norður-Ameríku stíga mikið í vitið . . einstaklega ógnvekjandi að þetta fólk kjósi aðilann sem hvað mest völd hefur í heiminum.

Annað skemmtilegra er það að hann Biggi sem var bekkjarfélagi minn allan grunnskólann er kominn í evrópumótaröðina í golfi og er fyrsti karlkyns íslendingurinn sem hefur það af.
Gott hjá honum ! . . Frétt og video-viðtal hér.

Af mér/okkur er allt sæmilegt að frétta . . allur þessi snjór sem á að vera í Danmörk núna er allavega ekki hér . . kostur að vera svona sunnarlega, hér er bara rigning og vorveður . . núna allavega ;)
Ég reyndar fékk póst um daginn frá kunningja mínum og þar stóð að ef ég forwardaði þessum pósti á minnst fimm aðila þá myndi mér hlotnast mikil gæfa . . en annars færi ílla fyrir mér.
Átti að skrolla niður og lesa og óska mér og senda hann svo áfram.
Alveg sem að fólk getur verið auðtrúa . . en ég gerði samt alveg eins og stóð í póstinum bara svo að ég gæti afsannað ruglið og skrifað um það hér . . . Og viti menn . . sama dag bilaði bíllinn okkar . . stendur hérna úti á plani og getur ekki annað.
Meiri lukkan það . . kemur þessum pósti reyndar ekkert við. Bíllinn var búinn að vera slappur undanfarið . . hann er bara franskur og getur ekki að því gert þó hann bili eins og hann fái borgað fyrir það.
Allavega held ég að "heilladísirnar" hafi annað að gera en að fylgjast með því hverjir forwarda hinum og þessum póstum og hverjir ekki.
Flestir póstar af þessari gerð eru amerískir af uppruna . . kemur á óvart miðað við videoið hér fyrir ofan.

Góðar stundir og megi lukkan fylgja ykkur ;)

mánudagur, febrúar 19, 2007

Til hamingju með daginn Magnús Ólafsson

. . ég er vanur að halda bolludaginn hátíðlegan, en þar sem ég bý í asnalegu landi með bakarí sem sameinast um að hafa lokað á mánudögum þá er það frekar erfitt.
Mig langar í bollurnar hennar mömmu !
Í fyrra reyndum við að gera bollurnar eftir uppskrift frá mömmu en þær urðu helst til flatar en samt mjög bragðgóðar . . best hefði verið (finnst mér) að hafa Royal-búðing í þeim en hann fæst auðvitað ekki í DK !
Í ár vorum við bara sein að fatta og ég ætlaði að redda hlutunum núna áðan með því að skreppa í bakarí . . en þá átti maður að fatta það í gær ! . . allt lokað í dag . . fíbbl þessir bakarar!
Ég endaði á að fara í Superbrugsen og kaupa kleinuhringi . . attlæ en ekki það sama.

Í gær var semsagt svokallaður "Fastelavn" sem er svona öskubolludagur . . þá koma krakkarnir í hverfinu í búningum og banka uppá hjá manni, syngja eitthvað leiðinlegt lag mjög ílla og ætlast svo til að fá nammi fyrir.
Á Fastelavn eru líka borðaðar bollur . .
þetta átti maður bara að fatta og ég verð semsagt bara að bíta í súran kleinuhring.
Ég klikka ekki á þessu aftur !

sunnudagur, febrúar 18, 2007

Gleðilegan Gylltan Grís

Já nú fara hlutirnir að gerast . . i can feel it!
. . Og áfram Eiríkur Rauði.
Getum ekki klikkað með manni sem getur talað Norsku og samt haldið kúlinu !

fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Blót ofl . .

Ég er búinn að vera voða upptekinn undanfarið að plana þorrablót sem var svo haldið á laugardaginn síðasta.
Það var mikið stuð og vel heppnað að mestu leiti . . hljómsveitin Sviss (Ingvar, Binni og Guffi) ásamt Hlyn (Gleðisveit Ingólfs, Búálfarnir) kom og hélt uppi stuðinu ásamt skemmtistjóratvíburum sem komu alla leið úr höfuðstaðnum til að stýra gleðinni.
Ég blandaði mér í hljómsveitina eftir fyrsta sett og hafði sjálfur mest gaman af, en þó skilst mér að þetta hafi nú bara verið hin fínasta frammistaða hjá mér þrátt fyrir mikið "riðg".

Það sem var ekki gaman var að vakna snemma á sunnudeginum og taka til eftir þetta 100 manna djamm . . . ég með einhverja kvefpest, næstum alveg raddlaus og ílla sofinn.
Við í nefndinni vorum reyndar öll frekar mygluð en flest okkar létu sig þó hafa það að klára það sem klára þurfti.
En hei þetta fær maður fyrir að setja sig í nefnd . . Svaka gaman og ég geri þetta aldrei aftur.
það verður ljúft á næsta ári að sjá ekki um neitt . . bara mæta borða og drekka og liggja svo á sófanum á sunnudeginum.
Mér allavega tókst það sem ég ætlaði . . að setja mig í þorrablótsnefnd til að flytja vini mína inn til að spila.
Nú er spurning að fara að gera eitthvað í þessum skóla . . það er doltið búið að sitja á hakanum.

Að lokum eru hér skilaboð frá Ungverska rapparanum Speak

fimmtudagur, febrúar 01, 2007

Jahá . .

Veit ekki alveg hvar ég á að byrja . . . Snilldartónleikar ! . . og hér er af hverju :

Byrjum á byrjuninni . . Fyrstur steig á svið eldgamall blökkumaður sem kallaði sig "The Chickenman" (af því hann átti einu sinni hænur) . . Hann var semsagt upphitunaratriðið og leit doltið út fyrir að Seagalinn hefði hirt hann upp af götuhorni í Memphis.
Hann var með tvo heimasmíðaða gítara, annan sem leit út eins og Banjo með gítarháls og hann kallaði hann líka Ganjo. Hann var smíðaður úr húsi utan af viftu (skildist mér, hann talaði óskýrt) og svo hafði hann klesst í hann pickup og hálsi af gömlum Ibanez.
Seinni gítarinn var vindlakassi og poolkjuði með gítarhaus (án gríns). Hann spilaði á hann með slide.
Báðir voru þeir "rafmagns" semsagt og skreittir eins og blökkumönnum einum er lagið . . allir í glingri . . . hann sagði eftir að hafa kynnt okkur fyrir gíturunum sínum :"if it sounds home made, thats because it is".
Þessi "Chickenman" var barasta fínasti blúsari og blúsinn sem hann tók um Hana sem hann átti einusinni er óvenjulegasta (og jafnvel skemmtilegasta) blúslag sem ég hef heyrt. Hann talaði líka mikið á milli laga og samkvæmt honum þá þekkti afi hans alla þekktustu blúsara fyriri tíma og þeir komu allir og spiluðu með honum "on his front porch".

Þegar "Hænsnamaðurinn" hafði lokið sér af bað hann okkur um að gera okkur klár fyrir "the Mojo Priest" . . . það var smá hlé og rótararnir kláruðu lokasándtékk og svo steig sjö manna blökkuband á svið : 2xGítar, Bassi, Trommur, Hljómborð og 2xbakraddir.
Þau byrjuðu að spila og báðu okkur um að klappa og hafa hátt svo að "the Mojo Priest" kæmi á svið . . þetta band var með þéttari böndum sem ég hef séð live . . blökkukonan á trommunum var þétt í tvennum skilningi en þó þéttari á trommunum en hún var þétt . . uuu . . já.
. . allavega . . eftir stuttan tíma af hrópi og klappi steig kappinn sjálfur á svið klæddur japanskri silkiskyrtu með hárið í tagl og rótarinn kom hlaupandi með Gibson og hengdi áann.

Seagal er með mjög djúpa og ráma rödd og það skildist ekki mikið hvað hann söng . . ekki heyrðist heldur nógu vel það sem hann gerði á gítarinn enda var það ekki mikið.
Allt sem að hann gat ekki bætti bandið á bakvið hann mörgum sinnum upp. Blökkuparið í bakröddunum voru meira með- eða aðal-söngvarar og bæði með svakalegar raddir.
Þegar svo kom að því að Steven kynnti bandið og gaf hverjum liðsmanni tíma til að sýna sig þá datt kjálkinn á mér niðrá bringu . . Báðir gítarleikararnir voru brill og ég hefði viljað heyra meira í þeim gegnum tónleikana og minna í gítarnum hans Steven.
Bassaleikarinn var með sex strengja bassa og "Grúv" er eina orðið í orðabókinni hans, bara snilld ! . . og það sama má segja um trommur og hljómborð.
Þegar "bakraddaparið" spreitti sig fékk ég bara gæsahúð. Þau tóku hver sína "raddæfinguna" og þvílikt raddsvið og power !

Tónleikarnir fá fjórar og hálfa af fimm stjörnum í skemmtanagildi og þar af á Steven þessa hálfu fyrir að vera jafnvel enn meira "korní" en myndirnar hans . . og sérstaklega þá fyrir að taka "Wild Thing" sem uppklappslag . . Við Silja komum út í góðum fíling og þá borgaði þetta sig allt.

Hit Counter
Hit Counter