blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

miðvikudagur, mars 28, 2007

Y So lonely


Á miðri myndinni hér til vinstri sjást tvíbura-BRÆÐURNIR í þýsku rokk/popp hljómsveitinni Tokio Hotel . .
er þetta gay-rokk ekki að fara aðeins of langt ? . .
Y-litningurinn er að deyja út ! . . ég er að segja það . . vildi að ég væri að grínast.
Ég er annars konulaus eins og er. Silja er á Íslandi af því bróðir hennar er að fermast og ég, krakkarnir og bróðir minn erum hérna í hlýjunni . . en ég væri samt til í að vera á Íslandi frekar . . ég þarf að koma á þessu ári einhvertíman . . í haust kannski . . kannski fyrr ;)

mánudagur, mars 19, 2007

Mjúsikk

Ég get ekki að því gert að mér finnst þetta eitthvað svo mikil snilld . . fer alveg hringinn og verður eitthvað svo hressandi . . eða finnst mér allavega :)

Þetta er samt miklumeira cool . .

Og fyrst ég er kominn í nostalgíuna þá er þetta flottasta lag í heimi og brilliant flutningur . . fyrir utan að Glen Hughes fer doltið overbord í falsettuöskrinu . . en Coverdale er langflottastur, magnað að hann sé enn að . . hann er í jafn fínu formi núna og þarna tveimur árum áður en ég fæðist !
. . og HÉR er sönnun fyrir því . . og nú er ég hættur ;)

laugardagur, mars 10, 2007

Nice guy finished

Þetta er allt sem sést á heimasíðu Boston núna . . Söngvari hljómsveitarinnar Boston, Brad Delph, er látinn . . Frétt á mbl um það hér.

Ég er farinn í að setja "more than a feeling" á repeat í græjunum.

föstudagur, mars 02, 2007

Seagallinn

Hér er viðtal við Steven Seagal sem var tekið rétt fyrir tónleikana sem hann hélt hér í Sønderborg (tónleikana sem við Silja fórum á).
Bara klikka á "se video" fyrir ofan myndina í fréttinni.
Það er meiraðsegja smá viðtal við Silju sem var tekið rétt áður en við fórum inn . . Fréttamennirnir voru fljótir að grípa sætustu stelpuna á svæðinu og spurja hana af hverju hún væri að fara á blústónleika með Steven Seagal ;)

Gamla settið og litli bróðir eru að koma í heimsókn á miðvikudaginn. Brósi er að spá í að prófa DK aðeins . . reyna að finna sér vinnu og prófa eitthvað nýtt.
Það er að koma vor, sólin hækkar á lofti, Það er komin helgi og ég er hress . . en þið ?

. . og að lokum ein langsótt spurning . . hver er tengingin milli þessara stafa: EBEORIETEMETHHPITI . . . og Clint Eastwood ?

Hit Counter
Hit Counter