Ég er ekki frá því að það að halda áfram í Master hafi verið með því gáfulegra sem ég hef gert um æfina. Ég var orðinn smeikur um að ég væri búinn að koma mér í síðar hægðir og réði ekkert við þetta en eins og er þá er allt önder kontról . . bara spurning að lesa og gera allt um leið eða jafn óðum og hætta ekki fyrr en maður skilur og er búinn að klára . . .
Ég er búinn að segja við sjálfan mig í upphafi hverrar annar að nú ætli maður að byrja á fullu og frá fyrsta degi og gera allt 100%. Alltaf hefur það samt endað í kæruleysi þar til það eru bara nokkrar vikur í próf og þá fer allt á fullt.
Nú hinsvegar er ég að standa við stóru orðin, enda kemst maður ekki upp með annað núna .. en það er líka að skila sér . . bara að ég nái að halda þessu í tvö ár . . en tvö ár eru nú fljót að líða.
Verst hvað ég verð súr í hausnum ef ég læri of mikið . . Það er t.d. auglýsing sem gengur hérna fyrir eldhúspappír þar sem faðirinn er að útskýra fyrir syninum að inní hverjum pappír sé fullt af pinkulitlum fílum sem sjúga upp allan vökvann . . og ég fór að spá í af hverju væri ekki til samsvarandi auglýsing fyrir Lambi klósettpappír . . að inní hverjum væri fullt af pinkulitlum lömbum sem að . . já . . kannski bara mér sem finnst þetta fyndið. Minnti mig á brandarann um björninn og kanínuna sem voru að kúka út í skógi . . . jæja . . segið mér eitthvað sniðugt !