blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, september 03, 2007

Jæja þá . .

Sumarið er víst búið . .
Hér sit ég í tölvustofu uppí skóla . . þ.e. nýja glersteypuvirkinu.
Það er klukkutími í fyrsta tíma og ég var að fá stundartöfluna áðan . . allt í rugli út af þessum flutningi í nýja skólabyggingu.
Ég er búinn að vinna í allt sumar og er reyndar ekki búinn enn.
Ég fer uppí vinnu eftir skóla að reyna síðasta séns til að halda í New York ferð sem stendur til boða ég leysi ákveðið vandamál.
Fyrirtækið sem ég var/er að vinna fyrir er að framleiða græju fyrir annað fyrirtæki og það fyrirtæki bauð upp á NY ferð fyrir lausn á ákveðnu vandamáli . . það vandamál þóttist ég vera búinn að leysa og það var búið að panta miðana fyrir mig og Silju þegar kom í ljós að þetta var ekki 100% lausn.
Það kemur í ljós seinnipartinn í dag hvort ég næ að bjarga þessu fyrir horn.
Ég er búinn að vinna í allt sumar við mjög erfið og krefjandi verkefni með tilheyrandi ábyrgð og á alltílagi launum líka svo að ég get ekki kvartað . . nema það að ég hef ekki haft neitt sumarfrí . . það verður þessvegna kærkomið að fá þessa NY ferð . . ég var búinn að redda pössun fyrir krakkana og allt klárt til að við Silja gætum kíkt helgarferð í stóra eplið.

En það er annars bara fínt að vera byrjaður í skóla aftur og geta slappað af ;)
Ég var á góðri leið í magasár í sumar en var farinn að geta höndlað þetta sæmilega nú í lokin . . það er allavega mikil ánægja með mig þarna í vinnunni og áframhaldandi vinna í boði . . og boðið upp á að taka lokaverkefnið í gegnum þá líka.

Ég læt vita hvernig þetta fer allsaman . . tíminn að fara að byrja . .

Hit Counter
Hit Counter