blaður í baunalandi

Nafn:
Staðsetning: Sønderborg, Denmark

mánudagur, janúar 21, 2008

Ferðalag

Jæja . . þá er ég kominn heim eftir snögga ferð til Köben.
Það gekk ótrúlega vel að finna sendiráðið (enda fann ég leiðina inni á eniro.dk og prentaði hana út) . . Það var líka fljótlegt og lítið mál að taka þessa passamynd . . eina manneskjan á svæðinu sá um að hleypa okkur inn og taka myndina og græja allt . . ég sá ekki fleira fólk svo það leit út fyrir að íslenska sendiráðið í danmörku væri bara þessi kona . . sem væri sosum alltílagi, hún réð allavega vel við þetta.

Ég flýtti mér dálítið á leiðinni til Köben, til að ná fyrir 12, þá vorum við semsagt bókuð.
Á leiðinni heim var ekki eins mikið stress og þessvegna ákvað ég að reyna sparakstur sem ég sá Jeremy Clarkson gera í Top Gear einusinni . . Ég hafði notað vel rúmlega hálfan tank til köben og mig langaði að prófa að meika það á restinni heim.
Svona sparakstur þýðir að það þarf að keyra eins og gamall maður með hatt.
Ég slökkti á miðstöðinni, allar rúður uppskrúfaðar, setti á stöð með rólegri tónlist, lét snúninginn aldrei fara yfir 3000rpm og reyndi að komast hjá því að nota bremsuna.
Svo er líka pæling að fara frekar hraðar niður brekkur og nota þann hraða til að fara upp næstu.
Þetta þýddi að hraðinn var á milli 80 og max 110.
. . . og viti menn . . þetta skítvirkar ! . . ég fór með c.a. 1/4 tank á leiðinni heim ! . . sem þýðir að ég notaði um helmingi minna bensín á leiðinni heim.
Fram og til baka (c.a. 700 km) á vel innan við tanki þó ég hafi klárað vel meira en helminginn til köben.
. . . en mikið svakalega er þetta leiðinlegt ! . . sérstaklega þetta með upp brekku partinn . . það tók frammúr mér, á leiðinni upp brekku, stór diesel sendiferðabíll með kerru fulla af drasli . . og gaurarnir í honum störðu á mig . . og ég bara slakur á 80 þar sem öll skilti segja 110 og flestir keyra á 130 :) . . . það hjálpaði mikið að Íva var eins og engill alla leiðina og við skemmtum okkur vel saman.
Nú er allavega allt að verða klárt fyrir íslandsferð 9. feb ;)

laugardagur, janúar 19, 2008

Fréttir

Við Íva förum á mánudaginn til Köben að græja handa henni vegabréf . . það verður að gerast í íslendska sendiráðinu í Köben semsagt.
. . Og ég er búinn að panta flug til íslands !
Við komum laugardaginn 9. Feb. og förum Sunnudaginn 17. Feb
Þetta er eini tíminn sem hentar. Rólegt í vinnunni hjá Silju á þessum tíma og skólinn nýbyrjaður hjá mér og svo er Óli í fríi þessa viku.
Við höfum ekki verið á íslandi síðan sumarið 2006 þannig að þetta verður nett sjokk reikna ég með . . . mikið búið að breytast og enginn þekkir mann lengur . . nema allir sem skipta máli !
víííí . . hlakka strax hellings til :)

þriðjudagur, janúar 01, 2008

Gleðilegt ár öll sömul og takk fyrir gamla

. . . ég veit ég veit . . bloggarinn í mér sofnaði aðeins en ég er búinn að vekja hann aftur.
Ég ætla að reyna að vera virkari á þessu nýja ári . . 2008 . . shit . . time is fun when your having flies ! . . og talandi um það þá er ég að missa mig yfir einsoghálfsárs gamalli plötu með Muse að nafni Black Holes & Revelations . . betra seint en aldrei . . en þetta er alveg langbesta plata sem ég hef heyrt lengi ! . . lagið Assassin er til dæmis alveg yndislega brútal og það er doltið magnað að á sömu plötu sé að finna þetta lag . . sjaldgæft og gaman að detta niðrá plötur sem eru svona góðar í geng . . skil ekki að ég hafi ekki tékkað á henni fyrir löngu.

Það er annars allt fínt að frétta af mér og okkur . . öll próf yfirstaðin og staðin . . Silja að vinna endalaust í Baby Sam . . eiginlega alltof mikið finnst mér . . en það gerir það að við eigum fyrir "salti í brauðið" eins og Bubbi sagði . . og bytheway rosalega verður aldrei þreytt að gera grín að Bubba . . ég hló hvað mest að þeim parti skaupsins . . og bara alveg ágætt skaup reyndar.
Fínt að geta "streamað" þetta svona frá ruv.is þó maður hafi nú ekki verið með í öllum bröndurunum.
Næst á dagskrá hjá okkur er að redda vegabréfi fyrir Ívu svo að við komumst til Íslans fljótlega . . það er komið eitt og hálft ár síðan . . alltof mikið !

Megi allir hafa það gott þar til næst
blæ í bili . . og endilega kommentisti í döðlur !

Hit Counter
Hit Counter