Ísland
Ég skrapp til Íslands núna um daginn . . var í þrjár vikur en mér finnst ég samt bara hafa skroppið.
Ísland er ágætt, þar býr heimsins besta fólk (fjölskyldan mín og vinir t.d.) og þar er fallegt . .
Á Íslandi sér maður náttúruna, fær hana beint í æð . . hún er ekki falin bakvið fullt af trjám!.
Ég upplifði í dag og gær veðrið sem allir voru að kvarta yfir að væri ekki á Íslandi og mér fannst það barasta doltið of mikið . . málið er að þegar það er gott veður á íslandi þá er það alveg passlegt, ekki 30 stig og allir að kafna (allavega ég) . . það er margt svona á íslandi . . en ekki allt.
Verð á ýmsu er þar alls ekki passlegt og samt eru þar "allir" að keppast við að eiga allt flottara en næsti . . og svo vinna allir eins og brjálaðir til að eiga fyrir öllu draslinu.
. . en það er ekki frá því að með þessari ferð hafi ég aðeins aukið á "heimþrá".
Ég átti ansi gott þrítugsafmæli á "Írskum dögum" á Akranesi. Grill hjá mömmu og svo ball Með Todmobile og Pöpum . . missti reyndar af Pöpunum að mestu vegna þess að Silja greyið snéri á sér hnéð . . en Todmo voru frábær! (Eyþór flottur í að covera Rammstein meðal annars).
Við skruppum upp í Svínadal að veiða sem var gaman . . og ég gerði margt annað skemmtilegt með fjölskyldu og vinum og þakka enn og aftur fyrir það allt.
En eins og alltaf í svona ferðum þá gerir maður aldrei nærri því allt sem maður ætlar að gera og allt í einu er ferðin búin og við tekur að þurfa að kveðja og snúa aftur heim . .
jú ég á heima í Danmörku og það hefur sína kosti líka . .
Málið er bara að ég og litla fjölskyldan mín söknum ykkar allra á klakanum og það er erfitt að fá svona smá "smakk" og þurfa svo að fara aftur.
Þetta hljómar allt eins og ég sé alveg að fara að grenja en svo er nú reyndar ekki . . þið verðir bara að vera dugleg að koma í heimsókn til mín, við borða, við hafa gaman og þá allir glaðir !
luvjú all !

11 Comments:
Já, það var gaman að sjá þig félagi. En kvíddu engu,ég kíki á þig þótt svo að ég hafi ekki náð að detta....aftur í það með þér þarna síðast.
Gaman að sjá ykkur dúllurnar mínar..
hiihihih mál manna að þú hafir aldrei verið eldri .....fínn þessi.
Gauti bró minn: Góðir hlutir gerast hægt og það verður sæt rúsína í endanum á þessari dönsku pylzu þegar að henni kemur.
Á þessu tímabili framm að því verður hellings vellings af atburðum sem bæði gleðja og kæta, svo njóttu þess að lifa hvern dag í einu og áður en þú veist hittumst við öll á ný.
Brynzyzta.
....og áður en fiskur hafði dregið andann voru þeir komnir í sælgætislandið........
Brynzyz sko. ekki Anonymous
sorry maður skrifar bara ekki skýrt þegar maður er með drullu.
Bryn.
Jú, ég sá ykkur hjónaleysin alltof lítið.
S+e ykkur bara seinna og munið að horfa á Rockstar og kjósa.
Knúsíknú.
Ingvar.
Svo ég vitni í mannvitsbrekku Íslands "þar sem fjórir hófar koma saman....þar er hestur.....eða virkilega furðuleg kind"....."Íslenska kindinn....hún er falleg....hún er fallegri en ég" Guðni Ágústsson, snillingur.
Nei en Gauti.....HVURN SJÁFLAN ANDSKOTANN Á ÞAÐ AÐ ÞÍÐA AÐ LÁTA MIG EKKI VITA AÐ ÞÚ ÁTT 30 ÁRA AFMÆLI.....djö.....skíttíðig....fast fyrir að segja ekki frá..
Til hamingju með daginn þann,
er fæddist þú á jörðinni minni,
dagurinn óséður framhjá mér rann,
En við elskumst síðar í sturtunni þinni.
og andyri....skíttíðig líka...fast
Vá hvað þú átt súra vini......hihihihihihihi.
P.S. Ég vissi alveg að þú varðst 30 ég veit líka að þú veist að ég vissi Það......af því ég er búin að óska þér til hamingju með það.....en til hamingju aftur bara nú ertu nokkrum dogum eldri en það.
Litla syz.
jah . . hvað get ég sagt . . notið merki ! (og bara ég og zyz föttum þennan) . .
þið eruð öll afskaplega hressandi !
. . og ég sagði ykkur öllum (held ég örugglega) að ég ætti afmæli og þú Ófeigur varst meiraðsegja að spá í að koma uppá skaga að því tilefni . . manstekki neitt!
svipað minni og gullfiskarnir þínir (það gæti útskýrt margt reyndar). . . :)
Fara með rétt mál Gátí....við ætluðum bara að fá okkur í glas og mig langaði að koma til að sjá hest syngja....nei ég meina Todmobile spila...ÆÐISLEG GRÚBBA.
En ég skaut nú að þig ferskeytlu...ekki níðvísu sem og að venju gamli vin.....
....og hvað svo...???
já ég kaus að "mentalblokkera" vísu þína út Ófeigur. . sé hana ekki lengur . . en takk samt minn kæri
Skrifa ummæli
<< Home